Harðlífi stjórnmálanna Sif Sigmarsdóttir skrifar 2. janúar 2015 12:00 Janúar er tími boðháttar. Gerðu magaæfingar og fáðu mitti eins og Miley Cyrus. Drekktu spínatsafa og fáðu rass eins og Kim Kardashian. Taktu lýsi og fáðu heila eins og Amal Clooney. Downloadaðu Photoshop og fáðu læri eins og Beyoncé. Nýársheitið mitt er að fá leggi eins og Gwyneth Paltrow, barm eins og Jennifer Lawrence og Pulitzer-verðlaunin eins og ... eins og einhver sem hefur fengið Pulitzer-verðlaunin. Í janúar keppast fjölmiðlar við að hjálpa okkur að strengja og halda nýársheitin með fréttum af megrunarkúrum og lífsstílsábendingum frá fræga fólkinu. Þykir sumum nóg um. Hafa samtök breskra næringarfræðinga tekið sig til og varað við þessum góðu ráðum. Á dögunum gáfu þau út lista yfir heilsufarsráð og megrunarkúra fræga fólksins sem þykja ekki til eftirbreytni og teljast jafnvel skaðleg. Að borða eins og steinaldarmaður eins og leikarinn Matthew McConaughey getur leitt til kalkskorts samkvæmt samtökunum. Að vera grænmetisæta til klukkan sex eins og Beyoncé getur leitt til ofáts á kvöldin. Og nýjasta heilsufarsæðið, að borða matskeið af leir á dag, getur haft ýmsa kvilla í för með sér, allt frá harðlífi til arsenikeitrunar. En hvatningar um nýársheiti í fjölmiðlum einskorðast ekki við heilsurækt og holdafar eins og lesendur Fréttablaðsins fengu að kynnast í upphafi vikunnar.Af ýmsum ástæðum„Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, krefst afsagnar ríkisstjórnarinnar og vill kosningar sem fyrst.“ Eyjan.is – 19. mars, 2010.„[Sigurður Kári Kristjánsson], þingmaður Sjálfstæðisflokksins, krefst þess að ríkisstjórn Steingríms J. Sigfússonar og Jóhönnu Sigurðardóttur segi af sér vegna Icesave-samkomulagsins“ Pressan.is – 11. desember, 2010.„Verði ekki fallist á skilaboðin frá Alþingi, er ég jafnframt þeirrar skoðunar að ríkisstjórnin eigi að segja af sér.“ Bjarni Benediktsson, Mbl.is – 29. ágúst, 2009.„Mér finnst að það væri æskilegt að ráðherrarnir segðu af sér af ýmsum ástæðum.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Fréttir Stöðvar 2 – 10. desember, 210. Eitt leiðinlegasta tímabil í íslenskum stjórnmálum í seinni tíð að mínu mati er fyrri hluti stjórnartíðar Jóhönnu Sigurðardóttur. Það hefur þó ekkert með Jóhönnu Sigurðardóttur að gera. Átök stjórnar og stjórnarandstöðu í kjölfar falls ríkisstjórnar Geirs Haarde minntu á fótboltaleik þar sem annað liðið nennir ekki að hlaupa og stendur bara og hrópar á dómarann: „Rauða spjaldið, dómari, rauða spjaldið.“ Þetta rammfalska og taktlausa afsagnargól stjórnarandstöðuflokka, álíka skemmtilegt og setti skólahljómsveit leikskólans Grænuborgar upp Niflungahring Wagners, hélt ég að hefði liðið undir lok með nýrri stjórnarandstöðu. En skólahljómsveitin er aftur stigin á við.Manísk óskhyggjaÍ upphafi vikunnar kallaði þingkonan Sigríður Ingibjörg Ingadóttir eftir því að nýársheiti Íslendinga fyrir árið 2015 yrði að hrekja ríkisstjórnina frá völdum. Í greininni „Komum þeim frá!“ tínir hún til hinar ýmsu ástæður sem henni þykja kalla á hallarbyltingu. Skattar eru lækkaðir á stóreignafólk og útgerðarmenn. RÚV er rústað. Heilu stofnanirnar eru sendar í útlegð til Skagafjarðar. Forsætisráðherra rífst og skammast. Allt eru þetta góðar ástæður til að láta ríkisstjórnina fara í taugarnar á sér. Staðreyndin er hins vegar sú að fátt sem ríkisstjórnin hefur gert ætti að koma á óvart. Framsókn sendir stofnanir og bitlinga út á land. Það er það sem Framsókn gerir. Sjálfstæðisflokkurinn lækkar skatta ríkra vina sinna. Það er það sem Sjálfstæðisflokkurinn gerir. Að kalla eftir afsögn ríkisstjórnarinnar nú er jafnhæpið og að kalla eftir að ríkisstjórninni sé bylt vegna þess að Sigmundur Davíð sé í svo ljótum skóm. Maníska óskhyggju þarf til að þykjast sjá samsvörun milli ástandsins nú og ástandsins eftir hrun sem leiddi til búsáhaldabyltingarinnar og afsagnar ríkisstjórnar Geirs Haarde. Þingmenn ættu að virða lýðræðið meira en svo en að kalla stöðugt eftir nýjum kosningum séu þeir sjálfir í tapliðinu. Hallarbylting eins og hvatt var svo kæruleysislega til í Fréttablaðinu í upphafi vikunnar er ekkert grín. Eilífum kosningum og ríkisstjórnaskiptum fylgja óvissa og óstöðugleiki sem fæstir kæra sig um. Innantóm köll stjórnarandstöðunnar um afsögn ríkisstjórnarinnar og forsætisráðherra hennar misbjóða vitsmunum kjósenda nú, rétt eins og þegar Bjarni Ben og Sigmundur Davíð kölluðu eftir því að ríkisstjórn Jóhönnu yrði bylt. Nær væri að stjórnarandstaðan kynnti fyrir kjósendum hvað hún hygðist gera öðruvísi kæmist hún til valda eftir lýðræðislegar þingkosningar árið 2016. Bylting er lýðræðinu eins og leir er meltingarkerfinu: ekkert sérstaklega gagnleg og hugsanlega skaðleg. Hún er harðlífi stjórnmálanna. Ástæða er því til að bæta í boðhátta-flóruna og strengja eftirfarandi nýársheit fyrir árið 2015: Föllum ekki fyrir fúski, hvorki þegar kemur að megrunarkúrum né tækifærismennsku tapsárra stjórnmálamanna. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sif Sigmarsdóttir Mest lesið Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson Skoðun Skoðun Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar Skoðun Fimm ára afmæli Batahúss Agnar Bragason skrifar Skoðun Takk! Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Gasa: Löng og torfarin leið til endurreisnar Philippe Lazzarini skrifar Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samkeppni um hagsæld Ríkarður Ríkarðsson skrifar Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Sjá meira
Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar