Stöngin inn hjá Ragnari og Krasnodar vann riðilinn | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. desember 2015 20:13 Ragnar Sigurðsson. Vísir/Getty
Ragnar Sigurðsson kom Krasnodar-liðinu á bragðið í 3-0 sigri á Qabala í Aserbaídsjan í kvöld í lokaumferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Sigurinn skilaði Krasnodar efsta sætinu í riðlinum en Borussia Dortmund tapaði sínum leik á sama tíma. Liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn. Ragnar skoraði fyrsta mark leiksins á 36. mínútu þegar hann skallaði inn aukaspyrnu Mauricio Pereyra. Ragnar náði föstu skalla í jörðina og svo í stöngina og inn en skallinn var óverjandi fyrir Andrey Popovic í marki Qabala. Þetta var fyrsta og eina mark Ragnars í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á þessu tímabili en annað markið hans í öllum keppnum. Umræddur Mauricio Pereyra skoraði annað markið á 40. mínútu og það var síðan Brasilíumaðurinn Wánderson sem innsiglaði sigurinn á 76. mínútu. Ragnar Sigurðsson spilaði allar 90 mínúturnar í vörn Krasnodar. Ragnar var ekkert að fagna markinu sínu of mikið en það má sjá það í spilaranum hér fyrir ofan. Krasnodar vann fjóra af sex leikjum sínum í riðlinum og kom til baka eftir tap á móti Borussia Dortmund í fyrstu umferðinni. Þetta var í þriðja sinn í síðustu fjórum leikjum sem Ragnar Sigurðsson og félagar í Krasnodar-vörninni halda marki sínu hreinu í Evrópudeildinni.Ragnar skorar í Evrópudeildinni
Evrópudeild UEFA Fótbolti Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Fleiri fréttir „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Sjá meira