Fóru vegna stefnu í útlendingamálum kristjana guðbrandsdóttir skrifar 16. desember 2015 07:00 Arndís A.K Gunnarsdóttir lögfræðingur segir mestu máli skipta að stefna í útlendingamálum breytist. Túlkun laganna sé of þröng. Fréttablaðið/GVA
Lögfræðingur Pepoj-fjölskyldunnar, Arndís Anna Gunnarsdóttir, segir að það sé þröng túlkun ákvæðisins og stefna í útlendingamálum sem skipti máli þegar kemur að úrbótum í málaflokknum. Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir því að Útlendingastofnun gefi upplýsingar um málsmeðferð og rannsókn umsókna um svokölluð mannúðarleyfi af heilbrigðisástæðum og sérstaklega er óskað eftir upplýsingum um þessi atriði þegar umsækjandi er barn.Hermann Ragnarsson hefur aðstoðað Pepoj fjölskylduna eftir fremsta megni. Hann segir engan misskilning hafa komið upp í túlkun á úrskurði Útlendingastofnunar. Fjölskyldan hafi farið vegna stefnu Íslands í Útlendingamálum. Fréttablaðið/Rósa„Það sem má betur fara varðandi framkvæmdina á þessari lagagrein er að mínu mati fyrst og fremst túlkunin og stefnan. Hana má rýmka. Gríðarlega þröng túlkun ákvæðisins og annarra ákvæða er varða hælisleitendur og flóttamenn er helsta vandamálið, fremur en málsmeðferðin sjálf. Ef lagatúlkunin er svona þröng, þá skiptir litlu máli þó mál sé betur rannsakað. Það er auðvitað sjálfsagt mál að gera athugasemdir þegar rannsókn er ábótavant, en það er hins vegar ekki gefið að ítarlegri rannsókn leiði til annarrar niðurstöðu. Það er stefnan sem er vandamálið.“ Pepoj-fjölskyldan ákvað að fara vegna þess að Albanar hafa ekki fengið dvalarleyfi hér á landi hingað til. Það var fyrst og fremst vegna þessa sem hún ákvað að draga kæru sína til baka. Þetta segir Hermann Ragnarsson sem hefur aðstoðað fjölskylduna en í kvöldfréttum RÚV nýverið kom fram að annar hælisleitandi túlkaði fyrir fjölskylduna. Hermann segir engan misskilning hafa orðið í þessum aðstæðum, fjölskyldan hafi verið ánægð með þjónustu Rauða krossins. Arndís segir mismunandi viðmið gilda í mismunandi aðstæðum. „Það er ljóst að hælisleitandi þarf að tjá sig og skilja aðra við margar og mismunandi aðstæður, bæði formlegar og óformlegar, í samtali og í síma eða skilaboðum. Mismunandi viðmið eru varðandi túlka við mismunandi aðstæður.“Samstöðufundur var haldinn á Austurvelli vegna áætlaðrar komu tveggja albanskra fjölskyldna með veik börn aftur til landsins enda ljóst að þær þurfa frekari stuðning við komuna. Umboðsmaður Alþingis hefur beðið um upplýsingar frá Útlendingastofnun vegna málsmeðferðarinnar. Fréttablaðið/ErnirÍ hælisviðtali hjá Útlendingastofnun og við birtingu ákvörðunar eða úrskurðar segir Arndís að alltaf sé boðaður túlkur sem talar íslensku. „Hér hjá okkur, fyrir ráðgjafarsamtöl, sem jafnan eru óformleg, notumst við oftast við símatúlkun frá fyrirtæki frá Bretlandi, sem heitir Language Line. Ef fólk mætir til okkar með vin með sér sem það vill að túlki, þá setjum við okkur almennt ekki upp á móti því ef það er ekkert sem bendir til annars en að það sé í lagi.“ Börn séu þó aldrei látin túlka og ef minnsti vafi leiki á að túlkunin verði hlutlaus, eða Rauði krossinn hafi minnsta grun um að ósk viðkomandi um að vinurinn túlki sé ekki einlæg, þá sé notast við Language Line. „Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að túlkun Phellumb hafi verið hlutlaus og áreiðanleg, enda var hann í sambærilegri stöðu og Kastriot og Xhulia, og ég veit ekki betur en að þau séu öll góðir vinir og að traust ríki á milli þeirra.“
Flóttamenn Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Sjá meira