Tók baksýnisspegilinn úr bílnum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 21. október 2015 16:00 Butler ásamt Derrick Rose, félaga sínum. vísir/getty
Jimmy Butler, leikmaður Chicago Bulls, ætlar aldrei að líta til baka í lífinu og staðfesti það með táknrænni aðgerð. Hann einfaldlega tók baksýnisspegilinn úr bílnum sínum svo hann þurfi ekki að líta til baka. Lögreglan er líklega ekki ánægð með það en hann hefur þó hliðarspeglana. Butler átti frábæra leiktíð í fyrra. Skoraði 20 stig að meðaltali í leik og komst í Stjörnuleik NBA-deildarinnar. Í kjölfarið fékk hann risasamning við Bulls sem mun færa honum tæpa 12 milljarða króna í laun á næstu fimm árum. Butler tók mikla áhættu fyrir tímabilið í fyrra er hann hafnaði samningstilboði upp á 5 milljarða króna. Hann taldi sig geta gert betur og tímabilið í fyrra fitar því bankabókina hans um auka 7 milljarða. Þetta var áhætta sem borgaði sig. Leikmaðurinn átti erfiða æsku. Ólst upp án föður og móðir hans rak hann út af heimilinu er hann var á unglingsaldri. Butler náði að rífa sig upp, koma sér í skóla ,þökk sé körfuboltanum, og er nú á toppnum. „Ég vil aldrei líta til baka á þessa tíma og hugsa um þá. Ég horfi bara fram á veginn. Þess vegna reif ég spegilinn úr bílnum," sagði Butler. „Ég hef skilið fortíðina eftir. Er ekki í fýlu út í neinn. Ég má ekki festast í fortíðarsvekkelsi og er í sambandi við foreldra mína í dag."
NBA Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Þjóðhátíð þegar Grænhöfðaeyjar komst áfram Sport Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira