Stjörnukonur í hverjum spennuleiknum á fætur öðrum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. október 2015 14:30 Bryndís Hanna Hreinsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, á fullri ferð með boltann. Vísir/Vilhelm
Nýliðar Stjörnunnar hafa kannski bara unnið einn af fyrstu fimm leikjum sínum í Domino´s deild kvenna í körfubolta en Stjörnukonur hafa engu að síður komið með mikla spennu inn í deildina í byrjun tímabilsins. Stjarnan er með í efstu deild kvenna í fyrsta sinn í vetur en liðið tryggði sér sætið með því að slá út Njarðvík í úrslitkeppni 1. deildar síðasta vor. Stjörnuliðið tapaði með þremur stigum á móti Val í framlengdum leik í gær, 95-92, en þetta var annar leikur Stjörnunnar í röð sem tapast í framlengingu. Í leiknum á undan tapaði Stjörnuliðið með einu stigi í framlengdum leik í Grindavík 85-84. Grindavík tryggði sér framlengingu á vítalínunni í leiknum á undan en í gær það voru Stjörnukonur sem tryggðu sér framlenginguna á móti Val í gær. Stjörnukonur fengu tækifæri til að vinna leikinn á móti Val í venjulegum leiktíma en ekkert kom út úr lokasókn liðsins alveg eins og þegar Stjörnukonur gátu unnið leikinn í lokasókninni í Grindavík. Stjörnuliðið hefði síðan að öllu eðlilegu átt að fara í þriðju framlenginguna í fyrstu fimm umferðunum í leiknum á móti Snæfelli í Stykkishólmi í annarri umferð. Bryndís Guðmundsdóttir kom í veg fyrir það með magnaðri sigurkörfu en það var innan við sekúnda eftir þegar Snæfellsliðið átti innkast undir körfu Stjörnunnar. Allir þessir þrír spennuleikir hafa tapast og það með aðeins samtals sex stigum. Fjórða tap Stjörnuliðsins kom síðan á móti toppliði Hauka í fyrstu umferðinni en Haukakonur hafa unnið alla fjóra leiki sína í deildinni. Eini sigurinn hjá Stjörnunni til þessa í deildinni kom á móti Keflavík þar sem Stjarnan skoraði sjö síðustu stig leiksins og vann 78-68 eftir að hafa verið undir í byrjun fjórða leikhlutans. Frammistaða liðsins hefur verið góð og þrátt fyrir að aðeins tvö stig séu í húsi er aðeins eitt lið í deildinni, Valur (85,5 stig í leik), búið að skora fleiri stig að meðaltali í leik. Stjörnukonur hafa skorað 84,4 stig að meðaltali í leik.Fyrstu fimm leikir Stjörnunnar í efstu deild kvenna: 14. október: 11 stiga tap á móti Haukum (75-86) 17. október: 2 stiga tap á móti Snæfelli (84-85) 21. október: 10 stigar sigur á móti Keflavík (78-68) 24. október: 1 stigs tap í framlengingu á móti Grindavík (84-85) 28. október: 3 stiga tap í framlengingu á móti Val (92-95)
Dominos-deild kvenna Mest lesið Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Handbolti „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Handbolti „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ Handbolti Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Körfubolti Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ Golf Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Kane sektaður en ekki settur í leikbann Körfubolti Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Fótbolti Heskey yngri tryggði City titil gegn United Enski boltinn Fleiri fréttir Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Kane sektaður en ekki settur í leikbann Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Baldur hættur í Garðabænum Sjá meira