Fjölnismenn vonast til að halda Chopart Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. september 2015 08:00 Chopart hefur verið sjóðheitur á undanförnum vikum. vísir/valli
Kennie Chopart hefur reynst Fjölnismönnum mikill happafengur síðan hann kom til liðsins í félagaskiptaglugganum í júlí. Daninn, sem lék með Stjörnunni 2012 og 2013, var reyndar arfaslakur í fyrsta leik sínum með Fjölni sem tapaðist 4-0 fyrir ÍBV. En síðan þá hefur Chopart verið frábær og skorað fimm mörk í síðustu átta leikjum en Fjölnir hefur unnið fjóra þeirra og gert fjögur jafntefli.Sjá einnig: Gluggakaupin gulls ígildi Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, vonast að sjálfsögðu til að halda Chopart í Grafarvoginum. „Við vonumst til að hann verði áfram með okkur og hann er búinn að standa sig frábærlega vel síðan hann kom. Og ég segi til hvers að breyta, við erum lið á uppleið og af hverju ekki að vera með í því,“ sagði Ágúst en að hans sögn hans gildir samningur Choparts út tímabilið. „Samningurinn er út árið með möguleika á framhaldi,“ sagði Ágúst en samningur spænska miðvarðarins Jonathan Neftalí, sem kom til Fjölnisliðsins á sama tíma og Chopart, rennur líka út eftir tímabilið. Ágúst segir að það sé líka vilji fyrir að halda Neftalí hjá félaginu en þjálfarinn kveðst sömuleiðis mjög ánægður með hans frammistöðu.Sjá einnig: Vel heppnuð umbreyting Fjölnir sækir FH heim í 21. umferð Pepsi-deildarinnar í dag.Leikurinn hefst klukkan 14:00 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Þá verður einnig hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Fótbolti Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Fótbolti Åge Hareide glímir við sjúkdóm Fótbolti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Fótbolti Skrautlegur ferðadagur Fótbolti Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af Fótbolti „Mamma vill bara að ég sé í ballett“ Sport FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Fótbolti Veðbankar telja mun líklegra að Ísland falli úr leik Fótbolti Fleiri fréttir Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira