Logi: Erum búnir að sýna að við eigum heima hérna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. september 2015 15:26 Logi Gunnarsson fagnar stigum í leiknum í dag. vísir/valli
Logi Gunnarsson átti stórleik fyrir Ísland í dag þegar liðið tapaði með 29 stiga mun gegn Serbíu, 93-64, í þriðja leik liðsins á EM 2015 í körfubolta. Logi skoraði 18 stig og tók þrjú fráköst á 24 mínútum, en enginn annar í liðinu skoraði fleiri en níu stig. Ísland var í góðum málum í hálfleik. Liðið spilaði sterka vörn en hefði mátt hitta betur úr opnum skotum. „Við vorum frábærir í fyrri hálfleik. Við spiluðum okkar vörn og þeir töpuðu mörgum boltum í fyrri hálfleik. Ég held þeir hafi tapað 15 boltum í fyrri hálfleik og það gera ekki mörg lið við Serbana,“ sagði Logi við Vísi eftir leikinn. „Ég er bara stoltur af okkur og hvernig við spiluðum í fyrri hálfleik. Seinni hálfleikurinn var ekki jafn góður en þeir eru bara rosalega góðir, stórir og sterkir.“ „Við hættum aldrei og börðumst og börðumst. Við fengum líka fullt af fínum skotum. Við verðum að skjóta alveg rosalega vel ef við eigum að geta unnið eitthvað af þessum liðum. Þeir skutu held ég 80 prósent í teignum í dag og það er ekki hægt að vinna lið sem spilar þannig.“ Craig Pedersen, þjálfari Íslands, vildi vera yfir í hálfleik miðað við hvernig staðan var. Það verður þó líka að benda á styrk serbneska liðsins. „Þjálfarinn sagði við okkur í hálfleik að Serbar ættu að vera heppnir að við værum ekki yfir. Við fengum þá til að tapa mörgum boltum og við hefðum verið yfir hefðum við verið að hitta,“ sagði Logi. „En það er alltaf hægt að segja þetta. Þeir eru gott lið og góðir í vörn. En við höldum bara áfram. Við erum búnir að sýna það í fyrstu leikjunum að við eigum heima hérna. Þó þetta sé stórt tap er það ekkert til að hafa áhyggjur af.“ Liðið er nú búið að spila þrjá leiki á fjórum dögum og á eftir leik á morgun og hinn. „Ég finn fyrir því að spila svona marga leiki. Maður hefur ekki spilað svona þétt áður á ferlinum og svo bætast núna við tveir leikir í röð. Auðvitað finnur maður fyrir þessu en núna hugsar maður bara vel um sig,“ sagði Logi. „Aðalatriðið er að njóta þess að vera hérna. Við njótum hverrar mínútu og gefumst aldrei upp. Þó við vorum mikið undir köstuðum við okkur á alla bolta,“ sagði Logi og hrósaði háværum stuðningsmönnum Íslands í stúkunni. „Ég er spurður á öllum blaðamannafundum út í þennan stuðning. Þjóðverjar spyrja mig til dæmis hvaðan þetta fólk kemur og af hverju er það enn þá að klappa. Ég er montinn af þeim,“ sagði Logi Gunnarsson.
EM 2015 í Berlín Ísland í dag Tengdar fréttir Hlynur: Nýttum ekki öll okkar tækifæri Fyrirliði Íslands var ánægður með kafla í leiknum gegn stórliði Serba á EM í körfubolta. 8. september 2015 14:38 Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland- Serbía 93-64 | Serbarnir of sterkir fyrir strákana Íslenska körfuboltalandsliðið fékk sinn fyrsta skell á Evrópumótinu í Berlín í dag þegar liðið tapaði með 29 stiga mun á móti gríðarlega sterku liði Serbíu, 93-64. 8. september 2015 14:15 Hörður Axel: Við erum ekki í túristaferð í Berlín Leikstjórnandinn er ánægður með baráttuna í íslenska liðinu en hann vill sigur áður en liðið fer heim. 8. september 2015 14:59 Ragnar: Þurfum ekki að skammast okkar Íslenska karlalandsliðið í körfubolta stóð lengi vel í einu allra besta liði heims. 8. september 2015 14:48 Jón Arnór: Verður flott að fá Pavel sterkan inn í tvo síðustu leikina Jón Arnór Stefánsson náði sér ekki alveg á strik í dag þegar íslenska körfuboltalandsliðið tapaði með 29 stigum á móti Serbíu í þriðja leiknum sínum á Evrópumótinu í körfubolta í Berlín. 8. september 2015 15:18 Hnéð að angra Jón Arnór: Engar áhyggjur, við bara töppum af því Íslenska körfuboltalandsliðið var að mestu án Jóns Arnórs Stefánssonar í seinni hálfleik þegar liðið tapaði með 29 stigum á móti Serbíu í dag í þriðja leik liðsins á Evrópumótinu. 8. september 2015 15:03 Mest lesið „Þá sér maður að það brestur margur og klökknar“ Sport Heimi fannst Arnar byrja of bratt með Ísland Fótbolti Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Enski boltinn Newcastle loks að fá leikmann Enski boltinn Sjáðu dramatísku sigurmörkin og Stjörnumenn skella Víkingum Íslenski boltinn Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Enski boltinn Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Enski boltinn Mun Jake Paul mæta Anthony Joshua í hringnum? Sport Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Enski boltinn Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enski boltinn Fleiri fréttir Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Stelpurnar töpuðu þrátt fyrir frábæra byrjun Stockton segir að LeBron „hafa notað þyrlu til að komast á toppinn“ Serbi inn í teig hjá Stólunum: „Ég veit að áhorfendurnir elska körfubolta“ Stelpurnar spila um sjöunda sætið á Eurobasket „Þeir eiga allir skilið að fara í lokahópinn“ Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Celtics festa þjálfarann í sessi NBA stjarna borin út Litáen of stór biti fyrir íslensku stelpurnar Öruggar með besta árangur Íslands á EM frá upphafi Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Sjá meira
Hlynur: Nýttum ekki öll okkar tækifæri Fyrirliði Íslands var ánægður með kafla í leiknum gegn stórliði Serba á EM í körfubolta. 8. september 2015 14:38
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland- Serbía 93-64 | Serbarnir of sterkir fyrir strákana Íslenska körfuboltalandsliðið fékk sinn fyrsta skell á Evrópumótinu í Berlín í dag þegar liðið tapaði með 29 stiga mun á móti gríðarlega sterku liði Serbíu, 93-64. 8. september 2015 14:15
Hörður Axel: Við erum ekki í túristaferð í Berlín Leikstjórnandinn er ánægður með baráttuna í íslenska liðinu en hann vill sigur áður en liðið fer heim. 8. september 2015 14:59
Ragnar: Þurfum ekki að skammast okkar Íslenska karlalandsliðið í körfubolta stóð lengi vel í einu allra besta liði heims. 8. september 2015 14:48
Jón Arnór: Verður flott að fá Pavel sterkan inn í tvo síðustu leikina Jón Arnór Stefánsson náði sér ekki alveg á strik í dag þegar íslenska körfuboltalandsliðið tapaði með 29 stigum á móti Serbíu í þriðja leiknum sínum á Evrópumótinu í körfubolta í Berlín. 8. september 2015 15:18
Hnéð að angra Jón Arnór: Engar áhyggjur, við bara töppum af því Íslenska körfuboltalandsliðið var að mestu án Jóns Arnórs Stefánssonar í seinni hálfleik þegar liðið tapaði með 29 stigum á móti Serbíu í dag í þriðja leik liðsins á Evrópumótinu. 8. september 2015 15:03