Ekkert sem bannar Val að nota Emil í bikarúrslitaleiknum á morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. ágúst 2015 12:57 Emil Atlason. Vísir/Anton Brink
Emil Atlason, lánsmaður frá KR, má spila með Val á móti KR í úrslitaleik Borgunarbikar karla á Laugardalsvellinum á morgun. Valsmenn eru í framherjavandræðum vegna meiðsla Patrick Pedersen, markahæsta leikmanns Pepsi-deildarinnar og gætu þurfti að leita til Emils. Samkvæmt heimildum íþróttadeildar 365 er ekkert sem bannar Valsmönnum að tefla fram Emil Atlasyni gegn KR í bikarúrslitaleiknum í fótboltanum á morgun. KR og Valur keppa klukkan fjögur og verður leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 sport. KR-ingar lánaðu Emil til Vals og samkvæmt heimildum íþróttadeildar er ákvæði í þeim samningi að spili Emil gegn KR þurfi Valsmenn að borga KR-ingum nokkrar milljónir króna aukalega. Framherjinn Patrick Pedersen, sem búinn er að skora 4 mörk í bikarnum í sumar, hefur glímt við meiðsli og óvíst er hvort hann verður leikfær á morgun. Emil Atlason var í byrjunarliði Vals á móti Breiðablik í síðasta leik en hann komið inná sem varamaður í þremur leikjum á undan honum. Emil á enn eftir að skora sitt fyrsta mark fyrir Val en það var vítaspyrna hans sem tryggði Val sigur í vítakeppninni á móti KA í undanúrslitum bikarsins. Faðir Emils, Atli Eðvaldsson, varð bæði bikarmeistari með Val (leikmaður) og KR (þjálfari) á sínum tíma en Atli var í tapliði KR þegar Valur og KR mættust síðast í bikarúrslitaleiknum fyrir 25 árum síðan.
Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Mest lesið Haaland sótti sjötíu hamborgara fyrir HM-farana Fótbolti Finnur Freyr: „Kannski hefur Davíð Tómas eitthvað til síns máls“ Körfubolti Króatar á HM en draumur Færeyja úti Fótbolti Holland getur fagnað HM-sæti en Þýskaland þarf stig Fótbolti Þungavigtin: Gummi Tóta kveður New York í úrslitaleiknum Fótbolti Þungavigtin: Mike hefur miklar áhyggjur af því að KR falli í körfunni Körfubolti Lífleg ræða Louis van Gaal á Ráðhústorginu í München - myndband Fótbolti Uppgjör: Valur - Álftanes 92-80 | Hökkuðu gestina í sig án Kristófers Körfubolti Mynd um leið Snæfells að fyrsta Íslandsmeistaratitlinum Körfubolti Styrmir sterkur í sigri á Spáni Körfubolti Fleiri fréttir Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira