Hrafnhildur og Eygló Ósk náðu lágmörkum fyrir ÓL 2016 Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. ágúst 2015 13:08 Hrafnhildur náði í dag ÓL-lágmarki í 100 metra bringusundi. vísir/ernir
Eins og fram kom á Vísi í morgun settu sundkonurnar Eygló Ósk Gústafsdóttir og Hrafnhildur Lúthersdóttir Íslandsmet á HM í sundi í Kazan í Rússlandi. Hrafnhildur stórbætti metið í 100 metra bringusundi en hún kom í bakkann á 1:06,87 mínútum. Hún átti sjálf gamla metið sem var 1:08,07 mínútur en hún setti það á Smáþjóðaleikunum á Íslandi í júní. Hrafnhildur setti ekki einungis Íslandsmet heldur náði hún einnig A-lágmarki fyrir Ólympíuleikana í Ríó á næsta ári. Hrafnhildur er þar með búin að tryggja sér keppnisrétt í þremur greinum á ÓL 2016 en áður hafði hún náð lágmarki fyrir 200 metra fjórsund og 200 metra bringusund. Eygló Ósk Gústafsdóttir setti nýtt Íslandsmet í 100 metra baksundi en hún synti á 1:00,25 mínútum. Hún átt sjálf gamla metið sem var 1:00,89 Um leið náði Eygló A-lágmarki fyrir ÓL 2016 en áður var hún búin að tryggja sér keppnisrétt í 200 metra baksundi. Í gær náði svo Anton Sveinn McKee A-lágmarki í 100 metra bringusundi er hann synti á 1:00,53 mínútum. Anton sló í leiðinni sex ára gamalt Íslandsmet Jakobs Jóhanns Sveinssonar. Það eru því fjórir Íslendingar sem hafa tryggt sig inn á ÓL í Ríó á næsta ári en auk sundfólksins verður spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir meðal keppenda í Brasilíu.
Ólympíuleikar 2016 í Ríó Sund Mest lesið Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Sport Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Enski boltinn Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Enski boltinn Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Handbolti UFC meistari segir frá fjárkúgun og „fölskum ásökunum“ Sport Milljarðs evra munur á liðunum: Börsungar lentu í brasi gegn þriðju deildar liði Fótbolti Halda Orra og Sporting engin bönd Handbolti Fleiri fréttir Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Milljarðs evra munur á liðunum: Börsungar lentu í brasi gegn þriðju deildar liði Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli UFC meistari segir frá fjárkúgun og „fölskum ásökunum“ Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sjáðu flottasta mark í heimi árið 2025 Bonmatí og Dembele best í heimi Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Rodgers tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Snorri kynnir EM-fara í vikunni Portúgal í stað Hollands í Formúlu 1 Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Romano segir fólki að fylgjast með Alberti í janúar Mariah Carey skemmtir á opnunarhátíð Vetrarólympíuleikanna Moyes ældi alla leiðina til Eyja EM ekki í hættu Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Sjá meira