Eygló Ósk bætti einnig Norðurlandametið í morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. ágúst 2015 11:18 Eygló Ósk Gústafsdóttir. Vísir/Stefán
Eygló Ósk Gústafsdóttir bætti ekki aðeins Íslandsmetið sitt í 200 metra baksundi á HM í Kazan í morgun því hún átti einnig Norðurlandametið sem féll því á sama tíma. Eygló Ósk Gústafsdóttir kom í mark í sundinu á 2.09.16 mínútum og varð í fjórða sæti í undanrásum. Eygló Ósk mun synda í undanúrslitum seinna í dag. Þetta er í þriðja sinn sem Eygló Ósk bætir Norðurlandametið á þessu ári. Hún eignaðist það fryst með því að synda á 2.09.86 mínútum á Opna danska meistaramótinu í Esbjerg í mars en bætti það síðan með því að synda á 2.09.36 mínútum á Íslandsmeistaramótinu í Laugardalslaug í apríl. Eygló Ósk náði fyrst íslenskra íþróttamanna A-lágmarki fyrir Ólympíuleikana í Ríó 2016 þegar hún bætti metin í 200 metra baksundinu í vor. Það verður spennandi að fylgjast með Eygló Ósk í undanúrslitasundinu seinna í dag en þar á hún möguleika á því að verða aðeins önnur íslenskra kvenna til að komast í úrslit á HM í 50 metra laug. Eygló Ósk syndir í seinni riðlinum þar sem hin ungverska Katinka Hosszu er líka en hún náði bestum tíma í undanrásunum í morgun. Eygló Ósk verður á þriðju braut með Hosszu öðrum megin við sig en hinum megin syndir síðan hin þýska Lisa Graf.
Ólympíuleikar 2016 í Ríó Sund Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Enski boltinn Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum Fótbolti Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Lehmann færir sig um set á Ítalíu Fótbolti Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Handbolti „Einhver vildi losna við mig“ Fótbolti Gunnlaugur Árni komst áfram á U.S. Amateur Golf Fleiri fréttir „Fáránleg staða sem er komin upp“ Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum „Er að koma inn í hlutverk sem ég veit að ég er góð í“ „Einhver vildi losna við mig“ Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Gunnlaugur Árni komst áfram á U.S. Amateur Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Vildi hvergi annarsstaðar spila Bað kærastann sinn afsökunar Dagskráin í dag: Besta, enski og Ofurbikarinn Lehmann færir sig um set á Ítalíu Enrique staðfestir að Donnarumma sé á förum frá PSG „Þetta var bara út um allt“ Wrexham áfram eftir vítaspyrnukeppni „Þetta var eflaust frábær leikur fyrir áhorfendur“ Nýtt hlaðvarp Sýnar um draumaliðsleik enska boltans FCK rassskellti frændur sína frá Malmö Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Duplantis bætti heimsmetið enn á ný Uppgjörið: FHL – Fram 3-2 | Fyrsti sigur FHL í hús Uppgjörið: Víkingur R – Breiðablik 2-4 | Meistararnir áfram í stuði Uppgjörið: FH – Þór/KA 5-3 | Markasúpa í Hafnafirði Heimir fær aðeins einn leik og aganefndin hittir illa á Aftureldingu Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Jaka skilinn eftir og þrettán leikmenn berjast um hin tólf sætin Sjá meira