Trúðaskygging nýjasta trendið? Ritstjórn skrifar 7. júlí 2015 11:00
Fyrir stuttu birti förðunar videobloggarinn Belladelune myndband þar sem hún skyggir á sér andlitið með heldur óvenjulegum hætti, og fór myndbandið líkt og eldur í sinu um samfélagsmiðla. Það að skyggja andlitið, eða „contouring“ nýtur gríðarlegara vinsæla hjá förðunarfræðingum víða um heim, og þá sérstaklega þeim sem eru á Instagram. Hingað til hefur verið notast við tvo liti, ljósan og dökkan, en nú hefur málið aldeilis flækst. Á andlitð er teiknað nokkurskonar trúðsandlit, og til viðbótar við venjulega „contouring“ bætast við bleikir, ferskju og fjólubláir litir til litaleiðréttingar. Litirnir eru svo blandaðir út með svampi. Þessi aðferð er þó langt frá því að vera ný, þó svo margir haldi að Belladelune hafi fundið upp á þessari skyggingu. Líkt og förðunarmeistarinn Vayne Goss segir í sínu förðunarmyndbandi, þá var það förðunarmeistarinn Joe Blasco sem byrjaði á þessu á sjöunda áratugnum. En sjón er svo sannarlega sögu ríkari. Þetta trend er komið aftur til að vera í einhvern tíma, svo nú er bara að ná í litina og svampinn og byrja að æfa sig.
Glamour Fegurð Mest lesið Inga leiðir byltingu í tískuheiminum Glamour Besta dæmið um hringrás tískunnar Glamour Drottning rauða dregilsins fagnar 70 ára afmæli í dag Glamour Kraftgallinn er kominn aftur Glamour Klæðumst bleiku í október Glamour Meghan áhrifin leynast víða Glamour Jennifer Lawrence var rokkaraleg í prinsessukjól frá Dior Glamour Kalda skórnir komnir til landsins Glamour Íris Björk og Chris Pine saman á rauða dreglinum Glamour Rauðar varir detta aldrei úr tísku Glamour