Kynlífsdagbók Jóns Gests og Natalíu Ritstjórn skrifar 25. mars 2015 16:00 Jón Gestur og Natalía
Glamour
Sigga Dögg kynfræðingur heldur úti kynlífskafla Glamour.„Natalía Ósk og Jón Gestur hafa verið saman í níu ár, þar af verið gift í sex ár. Þau eiga þrjú börn og eru að mörgu leyti hin hefðbundna íslenska vísitölufjölskylda. Eins og hjá svo mörgum vantar krydd í kynlífið. Hversdagsleikinn með sinni rútínu og barnauppeldi er til þess fallinn að kæfa erótíska strauma og klúrt tal. Þegar talað er um að „krydda kynlífið“ koma kynlífstæki upp í hugann á mörgum eða að prófa nýjar stellingar en hvernig er hægt að koma slíku við þegar fólk varla kyssist?Sigga DöggTeikning/Rakel TómasdóttirNánir vinir eru gjarnan spurðir hversu oft þeir stundi kynlíf með sínum mökum svo einhverjar tölur sé hægt að styðjast við. Því miður er það þannig að tölfræði eins pars dugar öðru skammt. Eina tölfræðin sem skiptir máli í kynlífi er sú sem þið tvö komið ykkur saman um, hvort sem það sé einu sinni í viku eða þrisvar. Natalía Ósk og Jón Gestur lögðu af stað í tíu daga kynlífsátak með temmilega mikla bjartsýni í farteskinu." Meira má lesa um kynlífsdagbók þeirra Jóns og Natalíu í fyrsta tölublaði Glamour. Hægt er að verða sér úti um áskrift hér.
Glamour Líf og heilsa Mest lesið Að segja sig úr söfnuði ryklausra gólfa og skínandi baðkara Glamour Skrautlegt þjóðhátíðarpartý Taylor Swift Glamour Það var ást við fyrstu sýn hjá Jared Leto og Gucci Glamour San Francisco bannar loðfeld Glamour Chrissy Teigen stolt af húðslitinu Glamour Ferskir straumar frá Dior Cruise Glamour „Ég er óörugg því að ég þarf að huga að útliti mínu á hverjum einasta degi" Glamour Cara Delevingne gengin til liðs við Puma Glamour Svart og silfur áberandi á People´s Choice verðlaununum Glamour Skipuleggjendur tískuvikunnar í New York ósáttir með Kanye West Glamour