CCP veitti Rauða krossinum 13,8 milljónir vegna Nepal Samúel Karl Ólason skrifar 3. júní 2015 16:31 Starfsfólk CCP veitti fulltrúum Rauða kross Íslands milljónirnar sem safnast höfðu.
Starfsfólk CCP veitti fulltrúum Rauða kross Íslands 13,8 milljónir króna, 103.650 þúsund dalir, til mannúðar- og hjálparstarfs í Nepal. Athöfnin fór fram við skrifstofur CCP en spilarar EVE Online söfnuðu upphæðinni og fór söfnunin fram í leiknum sjálfum. Viðstaddur afhendinguna var Forseti Íslands, sem hrósaði spilurum leiksins og starfsfólki CCP fyrir þann samhug sem íbúum Nepal væri sýndur með söfnuninni. Hann talaði einnig um að hér væri á ferð gott dæmi um hvernig hugvit og ný tækni getur nýst til góðra verka og hvernig þetta framtak gæti verið væri öðrum leikjafyrirtækjum heimsins til eftirbreytni. Söfnun sem þessi bryti niður andamæri og hindranir og að það væri svo sannarlega virðingavert að sjá og upplifa hvernig samfélag spilara EVE Online allstaðar að úr heiminum kæmi saman með þessum hætti til að leggja fórnarlömbum jarðskjálftana í Nepal lið. Í tilkynningu frá CCP og Rauða krossinum segir að þetta sé stærsta einstaka framlagið í söfnun Rauða kross Íslands fyrir íbúa í Nepal. Þar á eftir koma íslensk stjórnvöld sem veittu tíu milljónir króna í mannúðaraðstoð til Alþjóðasambands landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans vegna jarðskjálftanna.Spilarar EVE Online söfnuðu 13,8 milljónum króna.„Það er átakanlegt að þurfa að horfa upp á innviði samfélags, sem var einkar viðkvæmt fyrir, vera slegna niður af náttúruöflunum með jafn afgerandi hætti og í Nepal,“ segir Hermann Ottósson, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi. „Alþjóðahreyfing Rauða krossins gaf út neyðarkall til allra landsfélaga í kjölfar risaskjálftans 25. apríl og hafa síðan sjálfboðaliðar og sendifulltrúar unnið dag og nótt að hjálparstarfi við einkar erfiðar aðstæður í torfæru landi. Samgönguæðar hafa rofnað og fjarskiptasamband er stopult.“ „Fyrsta og síðasta skylda Rauða krossins er að hlúa að slösuðum og öllum þeim sem eru berskjaldaðir í kjölfar skjálftans. Sjá fólki fyrir húsaskjóli, heilbrigðisþjónustu, hreinu vatni og hreinlætisvörum til að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdóma. Verkefnin í Nepal eru krefjandi og verða viðfangsefni alþjóðasamfélagsins næstu ár og áratugi. En í öllu þessu myrkri er sem betur fer ljóstýra. Heimurinn hefur ekki gleymt Nepal og það er einmitt með aðstoð almennings sem er aflögufært sem tryggir og flýtir fyrir endurhæfingu heils samfélags. Þakklætið fyrir viðleitni CCP og samfélags EVE Online er ólýsanlegt. Rauði krossinn á Íslandi er stoltur að eiga slíka bakhjarla sem CCP. Slíkt samstarf er ómetanlegt í neyðarástandi á borð við það sem ríkir nú í Nepal.“ Eldar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi CCP, segir að starfsmenn hafi fylgst með eyðileggingunni og hörmungunum sem dunið hafa yfir Nepal í kjölfar jarðskjálftana, og bæði þeir og spilarar EVE Online hafi viljað reyna gera eitthvað til að hjálpa. „Við erum auðvitað afskaplega ánægð með að geta tekið þátt í að styðja við gríðarlega mikilvægt hjálparstarf Rauða krossins á svæðinu og geta búið til þennan vettvang fyrir spilara EVE Online til að láta gott af sér leiða. En við erum fyrst og fremst stolt af spilurum leiksins fyrir að rétta íbúum Nepal hjálparhönd með þessum hætti. Þótt starfsfólk okkar taki virkan þátt í söfnuninni, erum við hjá CCP í raun aðeins skapa umgörðina sem gerir spilurum EVE Online kleift að leggja þessu brýna málefni lið. Þeir hafa nú gefið hátt í 14 milljónir króna til hjálparstafsins sem er ótrúlega flottur árangur og glæsilegt í alla staði. Hér sannast það sem oft er sagt um þann samhug sem ríkir meðal spilara EVE Online, þó það ríki vissulega mikil samkeppni í leiknum sjálfum og þar séu háð stríð og orustur, þá er samvinna og samstarf eitt af lykilatriðum leiksins - sem og í því samfélagi sem í kringum hann þrífst.“Einstaklingar geta lagt söfnun Rauða krossins lið lið með því að hringja í 904-1500 (framlag: 1.500 kr), 904-2500 (framlag 2.500 kr) eða 904-5500 (framlag 5.500 kr). Þá er einnig hægt að leggja fé inn á reikning Rauða krossins 0342-26-12, kt. 530269-2649.
Hjálparstarf Jarðskjálfti í Nepal Nepal Tengdar fréttir Spilarar EVE Online safna fyrir Nepal Hafa safnað yfir 8,9 milljónum króna til hjálparstarfs Rauða krossins. 14. maí 2015 11:36 Hafa safnað tæpum 9 milljónum Spilarar EVE online hafa safnað miklu fé sem fer í neyðaraðstoð í Nepal. 15. maí 2015 09:30 Mest lesið Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Innlent Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Innlent Drífa Snædal snýr aftur Innlent Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Innlent Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent Flutti til Reykjavíkur í dag Innlent Fleiri fréttir „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Drífa Snædal snýr aftur Goddur jarðsunginn Tifandi tímasprengja, oddviti í beinni og breytt Reynisfjara Handtekin fyrir að beita opinberan starfsmann ofbeldi „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Sjá meira
Spilarar EVE Online safna fyrir Nepal Hafa safnað yfir 8,9 milljónum króna til hjálparstarfs Rauða krossins. 14. maí 2015 11:36
Hafa safnað tæpum 9 milljónum Spilarar EVE online hafa safnað miklu fé sem fer í neyðaraðstoð í Nepal. 15. maí 2015 09:30