Gallaður ræsibúnaður GM ollið 100 dauðsföllum Finnur Thorlacius skrifar 12. maí 2015 10:13 Höfuðstöðvar GM í Detroit
Fyrir ári síðan sagði General Motors frá því að gallaður ræsibúnaðar í 2,6 milljónum bíla þeirra hafi ollið 13 dauðsföllum en allir þessir bílar voru innkallaðir. Nú blasir hinsvegar við GM að dauðsföll vegna þessa galla eru orðin 100 og miklar bótakröfur standa uppá fyrirtækið frá fjölskyldum þeirra látnu. Kröfurnar snúa einnig að þeim sem slösuðust í þeim óhöppum sem gallinn olli og hafa nú þegar verið samþykktar kröfur vegna 184 slysa og víst er að þeim mun enn fjölga. Í þessum slysum lömuðust margir ökumenn og farþegar, sumir misstu útlimi og aðrir brunnu illa og enn aðrir urðu fyrir heilaskaða. Þann 31. janúar var síðasti dagur til að leggja inn bótakröfur vegna þessara slysa og alls hafa borist 4.342 kröfur á GM og eru 626 þeirra í skoðun og 1.315 til viðbótar, sem þykja krefjast betri sannana til krafna. Þessi rannsókn mun því taka mikinn tíma til viðbótar og kosta GM mikla fjármuni. Fimmtán starfmenn GM, sem sýnt höfðu vanhæfni eða glæpsamlega hegðun vegna viðbragða við þessum galla í ræibúnaðinum, hafa verið reknir frá fyrirtækinu.
Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent