Hlaupaveisla í Hafnarfirði um hvítasunnu Elísabet Margeirsdóttir skrifar 13. maí 2015 09:15 Vísir/Hreiðar Júlíusson
Vísir/Hreiðar Júlíusson Náttúruhlaup hafa notið sívaxandi áhuga íslenskra hlaupara og eru fjölmörg keppnishlaup haldin um land allt á sumrin. Á annan í hvítasunnu verður hið vinsæla Hvítasunnuhlaup Hauka haldið í þriðja sinn en mörgum hefur komið skemmtilega á óvart hve fallegt útivistarsvæði og góða hlaupastíga er að finna í útjaðri Hafnarfjarðar og við Hvaleyrarvatn. Hlaupaleiðin býður uppá mikla fjölbreytni og er hlaupið upp og niður brekkur, í gegnum þéttan skóg, meðfram hrauni og uppá Stórhöfða þar sem er einstakt útsýni yfir Reykjanesið og allt Reykjavíkursvæðið. Leiðin verður vel merkt og um 50 sjálfboðaliða koma að brautarvörslu og aðstoða á þremur drykkjarstöðvum. Á leiðinni má búast við mikilli skemmtun því sjálfboðaliðar munu skipta sér í lið og keppa sín á milli í að hvetja hlaupara áfram. Boðið verður upp á tvær vegalengdir: 17,5 km og 14 km, en í þeirri styttri er ekki farið upp á Stórhöfða og erfiðleikastigið heldur minna. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sætin í hverjum aldursflokki, auk þess sem sigurvegarar í kvenna- og karlaflokki í 17,5 km fá afhendan í fyrsta skipti farandbikar sem hefur fengið nafnið Hvítasunnumeistarinn. Allir þátttakendur eiga möguleika á útdráttarverðlaunum og mun Sportís gefa yfir 10 pör af Asics hlaupaskóm. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hlaupsins
Heilsa Hlaup Tengdar fréttir Ofurhlaup á Esjunni Næstkomandi laugardag verður Mt. Esja Ultra haldið í þriðja sinn. 20. júní 2014 08:45 Hlaupahátíð Ármenninga í Laugardalnum Fjölskylduhlaup og Víðavangshlaup Ármanns var haldið í dag við frábærar aðstæður. Hlaupið var um stíga og brekkur dalsins og fengu allir brakandi ferskar gúrkur í verðlaun. 9. maí 2015 21:00 Bíddu aðeins .. Það er jákvætt og hollt á allan hátt að taka þátt í hlaupahóp. Bæði er félagsskapurinn uppörvandi og þarna er saman kominn fólk á öllum aldrei með það sameiginlega markmið að bæta heilsuna. 9. febrúar 2015 14:00 Mest lesið Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Lífið Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi Lífið Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Lífið Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Bíó og sjónvarp Reykjalundur hlýtur alþjóðlega gæðavottun fyrir endurhæfingarþjónustu Lífið samstarf Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Lífið Djúsí maísstönglar frá BBQ kónginum Lífið samstarf Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni
Ofurhlaup á Esjunni Næstkomandi laugardag verður Mt. Esja Ultra haldið í þriðja sinn. 20. júní 2014 08:45
Hlaupahátíð Ármenninga í Laugardalnum Fjölskylduhlaup og Víðavangshlaup Ármanns var haldið í dag við frábærar aðstæður. Hlaupið var um stíga og brekkur dalsins og fengu allir brakandi ferskar gúrkur í verðlaun. 9. maí 2015 21:00
Bíddu aðeins .. Það er jákvætt og hollt á allan hátt að taka þátt í hlaupahóp. Bæði er félagsskapurinn uppörvandi og þarna er saman kominn fólk á öllum aldrei með það sameiginlega markmið að bæta heilsuna. 9. febrúar 2015 14:00