Hvaða bílar eru vinsælastir í hverju fylki Bandaríkjanna? Finnur Thorlacius skrifar 6. maí 2015 13:00 Ford F-150 pallbíllinn er vinsælastur allra bíla í 14 fylkjum.
Þó svo að Ford F-150 pallbíllinn sé vinsælasta bílagerðin í Bandaríkjunum og hafi verið það ógnarlengi, er ekki þar með sagt að hann sé vinsælastur í öllum fylkjum Bandaríkjanna. Á suðlægum slóðum eins og í Flórída er ekki mikil þörf fyrir pallbíla og þar er Toyota Corolla mest seldi bíllinn. Á hinni ströndinni í Kaliforníu, lang fjölmennasta fylki Bandaríkjanna, er það hinsvegar Honda Accord sem bílkaupendur eru sólgnastir í. Þó svo Honda Accord seljist best í Kaliforníu er Toyota Camry mest seldi fólksbíllinn í öllum Bandaríkjunum og sá söluhæsti í fylkjunum Alabama, Georgíu, S-Karolínu og N-Karolínu, en öll eru þetta suðlæg fylki á austurströndinni.Tveir Subaru bílar algengastir í 4 fylkjum. Tvær gerðir Subaru bíla eru vinsælastir allra bíla í fjórum fylkjum, Subaru Forester í Connecticut og Subaru Outback í Maine, Washington og Colorado. Í þessum fylkjum snjóar talsvert og í þeim býr fólk sem gjarnan hefur áhuga á útivist og hefur því þörf fyrir bíla sem ráða við erfiðari aðstæður. Einn bíll enn sem ekki er pallbíll er vinsælastur í tveimur fylkjum, þ.e. Honda CR-V en mestar líkur er að finna hann af öllum bílum í fylkjunum New York og Rhode Island.Pallbílar vinsælastir í flestum fylkjum. Í öllum öðrum ríkjum Bandaríkjanna eru pallbílar vinsælastir og þá ekki bara Ford F-150. Í ríkjum Arizona, Nevada, Alaska, Montana og Oregon eru Ram pallbílar vinsælastir. Alaska er landstærsta fylki Bandaríkjanna þó fámennt sé og þar er vissulega þörf fyrir stóra, sterka og fjórhjóladrifna bíla sem tekið geta mikinn farangur eða hlass og því skiljanlegur áhugi á bílum eins og þessum. Pallbíllinn Chevrolet Silverado er vinsælastur í miðríkjunum kringum stóru vötnin, þ.e. Illinois, Indiana, Iowa, Kentucky, Michigan, Missesota, Ohio, Delaware, New hampshire og V-Virginíu. Á Hawaii eyjunum er hinsvegar mest sala í Toyota Tacoma pallbílnum og í Vermont er vinsælasti bíllinn GMC Sierra, sem einnig er pallbíll.Ford F-150 mest keyptur í 14 fylkjum. Í öllum öðrum ríkjum Bandaríkjanna er Ford F-150 pallbíllinn mest seldi bílinn, þ.e. í fylkjunum Arkansas, Idaho, Kansas, Wyoming, Louisiana, Missouri, Mississippi, Nebraska, New Mexico, Norður- og Suður Dakota, Oklahoma, Pennsilvaníu, Tennessee og Utah. Það er ekki að spyrja að áhuga Bandaríkjamanna á pallbílum og nú seljast þeir eins og heitar lummur á tímum lækkandi bensínverðs.Í fjórum fylkjum eru Subaru bílar mest seldir og þar af Subaru Outback í þremur þeirra.
Mest lesið Drónaútgerð?: Þingmaður hefur áhyggjur af rússneskum skipum við Færeyjar Erlent „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Innlent Ætlar að peppa herforingjana á fundinum fordæmalausa Erlent Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Innlent Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Innlent Musk, Thiel og Andrés nefndir í nýjum skjölum Epsteins Erlent „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Innlent Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Innlent Anna ljósa fallin frá Innlent Jónína vill taka við af Ásmundi Einari Innlent