Ótrúleg endurkoma Golden State | Myndbönd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. apríl 2015 08:00 Klay Thompson skoraði 40 stig í nótt. Vísir/Getty
Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt en í öllum þeim hafði útiliðið betur og komst þar með í 3-0 forystu í rimmu sinni. Golden State vann mikið afrek með því að leggja New Orleans að velli, 123-119, í framlengdum leik. Gestirnir voru mest 20 stigum undir í fjórða leikhluta en náðu að koma til baka. Þristur Steph Curry, sem skoraði 40 stig í leiknum, tryggði Golden State framlengingu á lokasekúndunum. Curry settur niður þrjár þriggja stiga körfur í nótt, þar af einn í upphafi framlengingarinnar en Golden State lét ekki aftur af forystunni eftir það. Klay Thompson skoraði 28 stig fyrir Golden State sem var 20 stigum undir þegar fjórði leikhluti hófst. Anthony Davis klikkaði þó á afar mikilvægu vítaskoti fyrir New Orleans þegar 9,6 sekúndur voru eftir. Hann hefði getað jafnað metin fyrir sína menn í lok framlengingarinnar en skot hans geigaði. Chicaco er komið í 3-0 forystu gegn Milwaukee eftir sigur í nótt, 113-106, en tvíframlengja þurfti leikinn. Derrick Rose skoraði 34 stig og Jimmy Butler 24 en það var 8-0 sprettur í síðari framlengingunni sem tryggði Chicago loks sigurinn í hnífjöfnum leik. Giannis Antetokounmpo skoraði 25 stig fyrir Milwaukee og Khris Middleton átján. Cleveland vann Boston, 103-95, með 31 stigi frá LeBron James. Boston hékk þó í gestunum lengst af en Kevin Love setti niður tvo þrista á lokamínútunum sem tryggði Cleveland 3-0 forystu í rimmunni. Engu liði hefur tekist að koma til baka í sögu úrslitakeppninnar eftir að hafa lent 3-0 undir.Úrslit næturinnar: Boston - Cleveland 95-103 (0-3) Milwaukee - Chicago 106-113 (0-3) New Orleans - Golden State 119-123 (0-3)
NBA Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira