Tók stuðningsmannasveit Stólanna Francis úr sambandi? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2015 15:00 Alex Francis. Vísir/Valli
Haukar eru komnir 2-0 undir í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Tindastól í Dominos-deild karla í körfubolta og flestir eru sammála því að slök frammistaða Bandaríkjamannsins Alex Francis á mikinn þátt í að fyrstu tveir leikirnir hafa ekki verið eins og létt æfing fyrir Stólanna. Alex Francis hefur aðeins skorað samtals 14 stig í þessum tveimur leikjum en hann var með 22,8 stig að meðaltali í leik í einvíginu á móti Keflavík í átta liða úrslitunum. Framlag Alex Francis í þessum tveimur leikjum hefur verið -1 (Leikur eitt) og 3 (Leikur tvö) og það er ljóst að þessar tölur eru ekki boðlegar hjá atvinnumanni liðsins og í raun stórfurðulegar því hann var með 26,0 stig og 14,6 fráköst að meðaltali í deildinni í vetur. Það lítur hinsvegar út fyrir að stuðningsmannasveit Stólanna hafi hreinlega tekið kappann á taugum og úr sambandi með því að fara að telja í kór öll misheppnuðu vítin hans. Þetta byrjaði allt í deildarleik liðanna í mars þegar Francis var með 21 stig og 14 fráköst en klikkaði á 11 af 12 vítum sínum. Þetta hafði greinilega áhrif enda klikkaði Francis á níu síðustu vítum sínum í deildarleiknum. Sveitin tók síðan upp þráðinn í leik þar sem hann klikkaði á 9 af 10 vítaskotum sínum. Varnarmenn Stólanna eru óhræddir við að brjóta á Francis og senda hann á vítalínuna og þessi þróun virðast hafa dregið mest allan kraftinn úr leikmanninum sem spilar eins og hann hræðist það að fara á vítalínuna. Hér fyrir neðan má hvernig þessi 32 víti hans í síðustu þremur leikjum við Tindastól hafa endað.Víti Alex Francis í síðustu þremur leikjum við Tindastól:Deildarleikur á Króknum 8. mars (Francis hitti úr 1 af 12 vítum, 8 prósent) 1. Klikkaði 2. Klikkaði 3. HITTI 4. Klikkaði 5. Klikkaði 6. Klikkaði 7. Klikkaði 8. Klikkaði 9. Klikkaði 10. Klikkaði 11. Klikkaði 12. KlikkaðiLeikur 1 á Króknum 7. apríl (1 af 10, 10 prósent) 1. Klikkaði 2. Klikkaði 3. Klikkaði 4. HITTI 5. Klikkaði 6. Klikkaði 7. Klikkaði 8. Klikkaði 9. Klikkaði 10. KlikkaðiLeikur 2 á Ásvöllum 10. apríl (3 af 10, 30 prósent) 1. Klikkaði 2. HITTI 3. Klikkaði 4. Klikkaði 5. Klikkaði 6. Klikkaði 7. Klikkaði 8. HITTI 9. HITTI 10. Klikkaði
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Handbolti „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ Handbolti Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Körfubolti Egyptaland - Ísland | Annar íslenskur sigur í Kaíró? Handbolti Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Kane sektaður en ekki settur í leikbann Körfubolti Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Fótbolti Heskey yngri tryggði City titil gegn United Enski boltinn „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Fótbolti Fleiri fréttir Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Kane sektaður en ekki settur í leikbann Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Baldur hættur í Garðabænum Sjá meira