Biðin á enda hjá Alfreð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. mars 2015 20:06 Alfreð og félagar eru komnir í upp í 9. sæti spænsku deildarinnar. vísir/getty
Alfreð Finnbogason skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Real Sociedad í 3-1 sigri liðsins á Córdoba í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Alfreð var búinn að spila í 580 mínútur fyrir Sociedad í deildinni án þess að skora en hann náði loks að brjóta ísinn í San Sebastián í kvöld. Landsliðsframherjinn kom inn á sem varamaður á 89. mínútu og aðeins þremur mínútum síðar skoraði hann þriðja mark Sociedad eftir sendingu frá Carlos Vela. Florin Andone kom Córdoba, sem er í neðsta sæti spænsku deildarinnar, yfir á 12. mínútu en þá var botnliðið búið að missa varnarmanninn Aleksandar Pantic af velli með rauða spjaldið. Tveir félagar hans fuku svo af velli í seinni hálfleik en Córdoba lauk leik með aðeins átta leikmenn inni á vellinum. Imanol Agirretxe jafnaði metin fyrir Sociedad á 31. mínútu og Gonzalo Castro kom Böskunum svo yfir á 75. mínútu. Alfreð rak svo síðasta naglann í kistu botnliðsins í uppbótartíma, eins og áður sagði. Þetta var þriðji sigur Sociedad í röð en lærisveinar David Moyes eru nú komnir upp í 9. sæti deildarinnar.
Spænski boltinn Tengdar fréttir Eiður Smári í hópnum á móti Kasakstan | Sölvi og Elmar meiddir Landsliðsþjálfararnir Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck tilkynntu í dag hópinn sem mætir Kasakstan í undankeppni EM 2016 28. mars og Eistum í vináttuleik. 20. mars 2015 10:21 Mest lesið Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Fótbolti Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Fótbolti Åge Hareide glímir við sjúkdóm Fótbolti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Fótbolti „Mamma vill bara að ég sé í ballett“ Sport Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af Fótbolti Skrautlegur ferðadagur Fótbolti Leiðin á HM: Sögulegar sættir í Varsjá Fótbolti FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal að missa menn í meiðsli Vigdís Lilja á skotskónum Hákon: Þú vilt spila þessa leiki Spánn og Austurríki við það að komast á HM ´26 Åge Hareide glímir við sjúkdóm Leiðin á HM: Sögulegar sættir í Varsjá Arna og Sædís spiluðu í sigri Våleranga „Eggert kominn með stóra brosið og allir glaðir“ Belgar í brasi og þurfa að bíða eftir HM-sæti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Bökuðu botnliðið í miðjum slag við Blika Tólfan boðar til partýs í Varsjá Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Lofar að fara sparlega með Isak Skrautlegur ferðadagur Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Veðbankar telja mun líklegra að Ísland falli úr leik Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Hvernig umspil færi Ísland í? Haaland sótti sjötíu hamborgara fyrir HM-farana Holland getur fagnað HM-sæti en Þýskaland þarf stig Króatar á HM en draumur Færeyja úti Afar óvænt tap þegar Finnar hylltu goðsögn Hjammi með mikla reynslu: „Kannski ekkert sérstakt í tuttugu tilraunum“ Rosenörn yfirgefur FH Taylor dæmir úrslitaleikinn í Varsjá Mikil spenna í Færeyjum enda HM-sætið enn möguleiki Montiel til KA Marta getur aftur unnið verðlaunin sem voru nefnd eftir henni Sjá meira
Eiður Smári í hópnum á móti Kasakstan | Sölvi og Elmar meiddir Landsliðsþjálfararnir Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck tilkynntu í dag hópinn sem mætir Kasakstan í undankeppni EM 2016 28. mars og Eistum í vináttuleik. 20. mars 2015 10:21