Aron hættir með Kolding Henry Birgir Gunnarsson skrifar 27. mars 2015 13:30 Aron svekktur eftir leik Kolding í Meistaradeildinni um síðustu helgi. vísir/daníel
Landsliðsþjálfarinn Aron Kristjánsson er að hætta með danska meistaraliðið Kolding og verður tilkynnt um þessar breytingar hjá félaginu síðar í dag. Þetta hefur Vísir samkvæmt áreiðanlegum heimildum. Aron mun láta af þjálfun hjá félaginu eftir að tímabilinu lýkur. Ýmsar ástæður eru fyrir því að Aron er að hætta hjá félaginu. Til að mynda fjárhagsstaða félagsins sem er ekki nógu góð um þessar mundir. Svo spila fjölskylduástæður einnig inn í. Aron hefur búið einn í Danmörku fjarri fjölskyldu sinni en hann ætlar nú að flytja aftur heim til Íslands að því er heimildir Vísis herma. Nú er spurning hvað tekur við hjá þjálfaranum. Samningur hans við HSÍ rennur út í sumar og óvíst hvort hann haldi áfram sem landsliðsþjálfari. Þjálfarastaðan hjá hans gamla félagi, Haukum, er að losna þar sem Patrekur Jóhannesson er að hætta með liðið en samkvæmt heimildum Vísis hafa engar viðræður átt sér stað á milli Arons og Hauka. Það má aftur á móti telja líklegt að Haukar tali við Aron síðar fari svo að HSÍ framlengi ekki samningi hans við félagið. Aron hefur náð gríðarlega góðum árangri með danska liðið og gerði það til að mynda að Danmerkurmeisturum á síðustu leiktíð. Hann kom liðinu í 16-liða úrslit í Meistaradeildinni en þar féll liðið úr leik gegn Zagreb um síðustu helgi.
Handbolti Mest lesið Féll á lyfjaprófi á HM íslenska hestsins og missir silfur: „Eins og ég sé glæpamaður“ Sport Fantasýn: Bogi Nils þarf að vara sig og ekkert breyst hjá stjórnarformanni Play Enski boltinn Uppgjörið: KR - Stjarnan 102-98 | Meistararnir töpuðu í Vesturbænum Körfubolti Uppgjörið: Breiðablik 3-2 Víkingur | Breiðablik Íslandsmeistari 2025 Íslenski boltinn „Þetta svíður mig mjög sárt“ Fótbolti Íslensk hetja sendi Bergen upp í sjöunda himinn: Ein bestu kaup félagsins Fótbolti Stólarnir fastir í München Körfubolti Úr klefaleysi og snjómokstri í að taka við landsliði eða Blikum? Íslenski boltinn Fékk yfir sig vatnsgusu: „Fagna þessu á Gus Gus á morgun“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Grindavík - Njarðvík 109-96 | Grindvíkingar unnu í heimkomunni Körfubolti Fleiri fréttir „Það var smá stress og drama“ Afturelding áfram með fullt hús stiga Markaflóð á Akureyri Viktor Gísli og félagar í Barcelona heimsmeistarar félagsliða Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Sjá meira