Nýr Mercedes Benz B-Class frumsýndur Finnur Thorlacius skrifar 11. mars 2015 14:36 Sterkari útlínur B-Class.
Mercedes-Benz B-Class er kominn í nýrri útfærslu sem frumsýnd verður hjá Bílaumboðinu Öskju nk. laugardag. B-Class hefur fengið nýtt og ferskara útlit sem er með sportlegum og áberandi línum. Innanrýmið er nútímalegt og frísklegt með hágæða búnaði og efnisvali. Þessi vinsæli bíll fæst nú sjálfskiptur með 4MATIC aldrifskerfi frá Mercedes-Benz sem gerir hann enn meira spennandi við íslenskar aðstæður. B-Class er í boði með aflmiklum en sparneytnum bensín- og dísilvélum og fæst nú einnig aftur í metanútfærslu. Metan verður sífellt hagkvæmari kostur hér á landi, bæði umhverfis- og fjárhagslega. B-Class verður að sjálfsögðu fáanlegur í fjölbreyttum útfærslum og hægt er velja margskonar samsetningar í aukabúnaði. Frumsýningin á nýjum B-Class verður í sýningarsal Öskju nk. laugardag kl. 12-16. Auk hins nýja B-Class verða til sýnis sérlega glæsilegir S-Class og CLA 45 AMG. Auk þess verða ýmis sértilboð á ýmsum aukahlutum og rúðuþurrkum. Þá býðst eigendum Mercedes-Benz bifreiða, sem koma á sýninguna, að fá fría rúðuvökvaáfyllingu á bíla sína. Léttar veitingar verða í boði fyrir sýningargesti.
Mest lesið Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Brotist inn hjá Alberti Innlent „Ég var skelfingu lostinn“ Innlent Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Innlent Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Innlent