Neymar: Ég, Suárez og Messi erum betri en Benzema, Bale og Ronaldo Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. mars 2015 10:00 Luis Suárez, Lionel Messi og Neymar er fínasta framlína. vísir/getty
Brasilíski framherjinn Neymar telur að Barcelona geti endurtekið leikinn frá 2009 þegar liðið vann þrennuna; deild, bikar og Meistaradeildina. Barcelona er komið á toppinn í spænsku 1. deildinni, það mætir Athletic Bilbao í úrslitaleik spænska Konungsbikarsins 30. maí og er í góðri stöðu gegn Manchester City í í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar. „Við erum með lið sem getur unnið þrennuna,“ segir Neymar sem hefur spilað mjög vel á leiktíðinni og skorað 26 mörk í 32 leikjum í öllum keppnum. Einn af stærstu fótboltaleikjum hvers árs, El Clásico, fer fram um aðra helgi þegar Real Madrid heimsækir Barcelona á Nývang. Vinni bæði lið sína leiki um næstu helgi mun Clásico vera mjög mikilvægur, en þá getur Barcelona annaðhvort náð fjögurra stiga forystu á toppnum eða Real endurheimt toppsætið. Bæði lið eru með lygilega góða og dýra þriggja manna framlínu. Hjá Barcelona eru það Messi, Suárez og Neymar en Madrídingar bjóða upp á BBC-þríeykið; Bale, Benzema og Cristiano Ronaldo. Aðspurður hvort Barca-þríeykið sé betra svarar Neymar: „Það finnst mér. Við einbeitum okkur bara að okkur sjálfum. Við hugsum ekki um andstæðinginn.“ „Messi er sá besti í heiminum og Suárez er frábær markaskorari. Það er heiður fyrir mig að spila með þeim. Þetta eru tveir ótrúlega góðir leikmenn,“ segir Neymar.Gareth Bale, Karim Benzema og Cristiano Ronaldo.vísir/getty
Spænski boltinn Mest lesið Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Fótbolti Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Fótbolti Åge Hareide glímir við sjúkdóm Fótbolti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Fótbolti „Mamma vill bara að ég sé í ballett“ Sport Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af Fótbolti Skrautlegur ferðadagur Fótbolti Leiðin á HM: Sögulegar sættir í Varsjá Fótbolti FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal að missa menn í meiðsli Vigdís Lilja á skotskónum Hákon: Þú vilt spila þessa leiki Spánn og Austurríki við það að komast á HM ´26 Åge Hareide glímir við sjúkdóm Leiðin á HM: Sögulegar sættir í Varsjá Arna og Sædís spiluðu í sigri Våleranga „Eggert kominn með stóra brosið og allir glaðir“ Belgar í brasi og þurfa að bíða eftir HM-sæti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Bökuðu botnliðið í miðjum slag við Blika Tólfan boðar til partýs í Varsjá Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Lofar að fara sparlega með Isak Skrautlegur ferðadagur Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Veðbankar telja mun líklegra að Ísland falli úr leik Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Hvernig umspil færi Ísland í? Haaland sótti sjötíu hamborgara fyrir HM-farana Holland getur fagnað HM-sæti en Þýskaland þarf stig Króatar á HM en draumur Færeyja úti Afar óvænt tap þegar Finnar hylltu goðsögn Hjammi með mikla reynslu: „Kannski ekkert sérstakt í tuttugu tilraunum“ Rosenörn yfirgefur FH Taylor dæmir úrslitaleikinn í Varsjá Mikil spenna í Færeyjum enda HM-sætið enn möguleiki Montiel til KA Marta getur aftur unnið verðlaunin sem voru nefnd eftir henni Sjá meira