Sjötta útivallartap Keflvíkinga í röð í deildinni | Taugar Matthíasar héldu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2015 20:57 Matthías Orri Sigurðarson. Vísir/Valli
ÍR-ingar komust af botninum og upp úr fallsæti með tveggja stiga heimasigri á Keflavík í æsispennandi leik í Seljaskólanum í kvöld, 78-76. Matthías Orri Sigurðarson skoraði þrjú síðustu stig leiksins af vítalínunni og tryggði sínum mönnum gríðarlega mikilvægan sigur. Matthías var með 17 stig. 10 fráköst og 6 stoðsendingar í leiknum en fyrirliðinn Sveinbjörn Claessen bætti við 15 stigum, 6 fráköstum og 6 stoðsendingum. Þetta var sjötti tapleikur Keflavíkurliðsins í röð á útivelli og slæmt gengi utan Keflavíkur gæti reynst liðinu dýrkeypt í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. ÍR-ingar voru tveimur stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 24-22, og sá munur var enn á milli liðanna í hálfleik en ÍR-liðið var þá 44-42 yfir. ÍR-ingar unnu þriðja leikhlutann 15-12 og voru því með fimm stiga forskot fyrir lokaleikhlutann, 59-54. ÍR náði sjö stiga forskoti í upphafi fjórða, 66-59, en þá komu tveir þristar í röð frá Davon Usher og munurinn var orðinn eitt stig. ÍR hélt þó frumkvæðinu en Valur Orri Valsson kom Keflavík yfir í 76-75 þegar rúm mínúta var eftir af leiknum. Matthías Orri Sigurðarson setti niður þrjú af fjórum vítum sínum á lokakaflanum sem var nóg því Keflvíkingum tókst ekki að skora fleiri stig.ÍR-Keflavík 78-76 (24-22, 20-20, 15-12, 19-22)ÍR: Matthías Orri Sigurðarson 17/10 fráköst/6 stoðsendingar, Sveinbjörn Claessen 14/6 fráköst/6 stoðsendingar/5 stolnir, Kristján Pétur Andrésson 12/5 fráköst, Trey Hampton 12/12 fráköst, Vilhjálmur Theodór Jónsson 7, Ragnar Örn Bragason 7/5 fráköst, Hamid Dicko 5, Pálmi Geir Jónsson 4.Keflavík: Davon Usher 26/6 fráköst, Guðmundur Jónsson 14, Valur Orri Valsson 11/5 stoðsendingar, Damon Johnson 9/5 fráköst, Reggie Dupree 9, Andrés Kristleifsson 5, Davíð Páll Hermannsson 2, Þröstur Leó Jóhannsson 0/5 fráköst.Dómarar: Jón Bender, Eggert Þór Aðalsteinsson, Davíð Tómas Tómasson.
Dominos-deild karla Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti RFS - Vestri | Ævintýrið heldur áfram Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira