Bætir Friðrik Ingi metið í beinni í kvöld? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. nóvember 2014 06:00 Friðrik Ingi Rúnarsson og Teitur Örlygsson. Vísir/Stefán
Kvöldið í kvöld getur orðið sögulegt fyrir bæði körfuboltalið Njarðvíkur sem og þjálfarann Friðrik Inga Rúnarsson sem vantar einn sigur til þess að bæta met sitt og Vals Ingimundarsonar yfir flesta úrvalsdeildarsigra sem þjálfari karlaliðs Njarðvíkur. Fyrir leikinn í kvöld hafa þeir Friðrik Ingi og Valur báðir stýrt Njarðvíkurliðinu til sigurs í 94 leikjum í úrvalsdeild karla. Þeir hafa í gegnum tíðina skipst á því að taka metið hvor af öðrum síðan Valur bætti met Gunnars Þorvarðarsonar árið 1994. Friðrik Ingi tók metið af Val tímabilið 1999-2000 en Valur endurheimti það þegar hann tók við Njarðvíkurliðinu í þriðja sinn veturinn 2008-09. Nú er Friðrik Ingi á sínu þriðju vakt í Ljónagryfjunni og hefur þegar stýrt liðinu til sigurs í tveimur leikjum og með því jafnað met Vals. Einar Árni Jóhannsson var þó kominn ansi nálægt metinu síðasta vor en lokasigur liðsins í deildinni var hans 93. sem þjálfari Njarðvíkur í úrvalsdeild. Einar Árni hætti hins vegar með liðið eftir tímabilið en reynir kannski við metið einhvern tímann seinna. Teitur Örlygsson er aðstoðarþjálfari Friðriks í dag en hann hjálpaði Friðriki að vinna 89 af þessum leikjum sem leikmaður Njarðvíkurliðsins. Teitur spilaði fyrir Friðrik fyrstu fimm tímabil hans sem þjálfari liðsins en missti af þremur sigurleikjum. Teitur náði einnig að hjálpa Val að vinna 80 af sínum 94 leikjum sem leikmaður. Friðrik Ingi hefur stýrt Njarðvíkurliðinu til sigurs í sjö af tíu leikjum í deildarkeppni og tvö af þessum þremur töpum liðsins hafa verið með aðeins eins stigs mun. Leikur Njarðvíkur og Keflavíkur hefst klukkan 19.15 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.Flestir sigrar sem þjálfari Njarðvíkur í úrvalsdeild karla: Valur Ingimundarson 94 Friðrik Ingi Rúnarsson 94 Einar Árni Jóhannsson 93 Friðrik Ragnarsson 75 Gunnar Þorvarðarson 51
Dominos-deild karla Mest lesið Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Golf Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Fótbolti Steven Gerrard orðinn afi Enski boltinn Hefur ekki hugmynd hvar Ólympíugullið hans er niðurkomið Golf „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Körfubolti Dagskráin í dag: Snóker og golf, aftur Sport Stólarnir verða með í Evrópukeppninni í vetur Körfubolti Fleiri fréttir Stólarnir verða með í Evrópukeppninni í vetur „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Elvar Már til Póllands Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Oladipo með augastað á endurkomu Enginn Kobe Bryant á topp tíu yfir þá bestu í sögunni Wembanyama fær grænt ljós frá læknateymi Spurs Raggi Nat á Nesið Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Stólarnir semja við spænskan leikstjórnanda Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Strákarnir unnu Slóvena á EM Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Sjá meira