Halda upp á tuttugu ára afmælið með oddaleik á sama stað Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. apríl 2014 10:00 Jón Axel Guðmundsson, sonur Guðmundar Bragasonar. Vísir/Daníel
Grindavík og Njarðvík mætast í kvöld klukkan 19.15 í Röstinni í Grindavík í úrslitaleik um sæti í lokaúrslitum Dominos-deildar karla á móti KR. Njarðvík tryggði sér oddaleik með 77-68 sigri á Grindavík í leik fjögur. Það eru liðin tuttugu ár og einum degi betur frá eftirminnilegum oddaleik Grindavíkur og Njarðvíkur í Röstinni í Grindavík en 16. apríl 1994 mættust þau í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Grindavík var 2-1 yfir í einvíginu en steinlá í leik fjögur í Njarðvík. Grindavík var einnig 59-51 yfir í oddaleiknum en Njarðvíkurliðið vann lokamínúturnar 17-8 og tryggði Rondey Robinson Njarðvík titilinn á vítalínunni.Guðmundur Bragason (Grindavík) og Friðrik Ragnarsson (Njarðvík) voru í stórum hlutverkum með sínum liðum í þessum leikjum fyrir 20 árum og svo skemmtilega vill til að synir þeirra mætast í leikjunum í ár.Elvar Már Friðriksson er lykilmaður hjá Njarðvík og Jón Axel Guðmundsson er að spila mjög mikilvægt hlutverk hjá Grindavík. Þar að auki hafa yngri bræður þeirra, RagnarHelgiFriðriksson og IngviÞórGuðmundsson, einnig komið við sögu í einvíginu. Leifur Garðarsson dæmir leikinn í Grindavík í kvöld en svo skemmtilega vill til að hann dæmdi einnig leikinn fyrir tuttugu árum þá með Kristni Albertssyni. Það má búast við troðfullu íþróttahúsi í Grindavík í kvöld og eins gott fyrir áhugasama að mæta snemma.
Dominos-deild karla Mest lesið Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug Körfubolti „Ég skulda tannlækninum afsökunarbeiðni“ Sport Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Fótbolti „Kom fyrstur út úr leikmannagöngunum með augnaráð sem hefði getað drepið“ Fótbolti Notaði eiginmanninn sem héra og vann sitt fyrsta maraþon Sport Mikil spenna í Færeyjum enda HM-sætið enn möguleiki Fótbolti „Ég var bara millimetrum frá því að lamast“ Sport Sögulegt bardagakvöld á Ásbrú: „MMA er ekki ólöglegt“ Sport Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Golf Fleiri fréttir Mark Cuban mættur aftur Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug „Í öllum góðum hópum er alltaf einn sem labbar aftur á bak“ Uppgjörið: Keflavík - ÍA 96-72| Sigur Keflavíkur aldrei í neinni hættu Meistararnir stungu af í seinni Uppgjörið: ÍR - Grindavík 78-86 | Tveimur hent úr húsi en toppliðið heldur flugi KR - Njarðvík 88-97 | Dýrmætur sigur gestanna ÍA sækir Kanann sem Ármann losaði Extraleikarnir: Mættu báðir með markvörð úr silfurliðinu í Peking „Heimskuleg taktík hjá mér“ Sátt eftir fyrsta landsleikinn: „Vá, ég er eiginlega orðlaus“ Uppgjörið: Ísland - Serbía 59-84 | Löguðu erfiða stöðu Elvar með sautján stig gegn sínu gamla félagi Martin stoðsendingahæstur í sigri Nýtt fyrirkomulag á vali leikmanna í stjörnuleik NBA „Þjálfun snýst um samskipti“ Rebekka Rut spilar fyrsta landsleikinn í kvöld Ármenningar leggja árar ekki í bát og leita að nýjum Kana „Mér finnst við vera að taka skref í rétta átt fyrir framtíðina“ Sektaður um þrjár milljónir fyrir að kasta flösku í áhorfanda Stólarnir gáfust ekki upp og gengu frá Manchester Tryggvi fagnaði fjórða Evrópusigrinum í röð Stjórinn sem skipti Doncic frá Dallas missir starfið Bæði Florída-liðin unnu á flautukörfu í nótt og svona fóru þau að því Lofuðu Óla Óla og fengu hann svo í beina útsendingu úr búningsklefanum Slakur undirbúningur hjá Ármanni: „Þær virðast koma bara alveg af fjöllum“ Blikarnir taplausir á toppnum Sonur Dominique Wilkins með vindmyllutroðsluna í blóðinu Kári og Kristó eru skemmtilegasta kombóið í þessari deild NBA-goðsögnin Lenny Wilkens látin Sjá meira