Helgi Jónas samdi við mennina sem börðu hann ávallt í spað Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2014 08:00 Helgi Jónas Guðfinnsson gerði Grindvíkinga að Íslandsmeisturum þegar hann þjálfaði síðast árið 2012. Vísir/Stefán
Helgi Jónas Guðfinnsson kom mörgum á óvart þegar hann hætti með Íslandsmeistaralið Grindavíkur fyrir tveimur árum og þeir hinir sömu voru líka hissa í gær þegar þeir heyrðu að hann væri orðinn þjálfari erkifjendanna úr Keflavík. Helgi Jónas gerði tveggja ára samning við Keflavík í gær og tekur við liðinu af Andy Johnston. „Þetta er stórt skref og ég er með þessu að fara svolítið út fyrir þægindarammann því ég þjálfaði áður Grindavík í þó nokkuð vernduðu umhverfi,“ sagði Helgi Jónas í gær. „Þegar ég var að tala við Keflvíkingana þá var gaman að segja frá því að þá sat ég á móti Fali Harðar, Gauja Skúla og Alberti Óskars, allt menn sem voru búnir að berja mig í spað á sínum tíma og vinna mig hægri, vinstri. Ég er þakklátur fyrir að þeir sýni mér þetta traust,“ segir Helgi Jónas í léttum tón. Hann hætti óvænt fyrir tveimur árum en hvað hefur breyst? „Það var tvennt í því. Ég var að standsetja fyrirtæki sem tók sinn tíma og ég vildi einbeita mér að því. Svo var annað meira persónulegt sem ég var að velta fyrir mér. Eitt af því var hvort þjálfunin væri eitthvað sem ég vildi gera. Ég var ekki alveg hundrað prósent viss um það,“ segir Helgi Jónas. „Það er alveg skiljanlegt að fólk verði hissa og að einhverjum svíði að sjá mig með Keflavík en það er bara þannig. Ég er ekki að fara að þjálfa Grindavík næstu tvö árin þar sem Sverrir er með samning við þá. Mér gafst þetta tækifæri núna og ég veit ekkert hvort ég fæ annað tækifæri til að þjálfa. Það gæti komið seint og jafnvel aldrei. Þetta er krefjandi verkefni og stór áskorun. Ég hlakka bara til,“ segir Helgi Jónas Guðfinnsson
Dominos-deild karla Mest lesið Endurnýja kynnin: „Stórar skoðanir en ekki endilega góðar skoðanir“ Golf Dæmdur ofbeldismaður keppir á Opna breska í ár Golf Körfuboltakvöld í Boston: Nablinn tók viðtal við Ice Cube og sættist við Pargo Körfubolti Getur verið erfitt að kveðja: „Það var aðeins grátið“ Sport Skærasta stjarna Sviss fær lítið að spila á EM en allir vilja hitta hana Fótbolti Náðu ekki að bjarga lífi nítján ára vonarstjörnu Sport Gæti fengið átta milljarða króna Formúla 1 Caitlin Clark aftur meidd og vandaði dómaranum ekki kveðjurnar Körfubolti Yamal tekur óhræddur við tíunni Fótbolti Nýir erlendir leikmenn halda áfram að streyma í botnliðið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hentu frá sér leiknum með hörmungarbyrjun á seinni Körfuboltakvöld í Boston: Nablinn tók viðtal við Ice Cube og sættist við Pargo Caitlin Clark aftur meidd og vandaði dómaranum ekki kveðjurnar Bradley Beal til Clippers Íslensku strákarnir töpuðu stórt í sextán liða úrslitunum Stólarnir verða með í Evrópukeppninni í vetur „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Elvar Már til Póllands Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Oladipo með augastað á endurkomu Enginn Kobe Bryant á topp tíu yfir þá bestu í sögunni Wembanyama fær grænt ljós frá læknateymi Spurs Raggi Nat á Nesið Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Stólarnir semja við spænskan leikstjórnanda Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Strákarnir unnu Slóvena á EM Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Sjá meira