Puttarnir fá að kenna á því Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 28. mars 2014 12:30 Edda Lilja saumar út í ljósmynd af rústum Viðborðs í Hornafirði. Fréttablaðið/GVA „
Aðalmyndirnar höfum við unnið saman en sýnum líka það sem við gerum hvor í sínu lagi,“ segir Edda Lilja Guðmundsdóttir textílkennari um sýninguna Saumað í myndlist sem hún og föðursystir hennar, Hlíf Leifsdóttir, opna í Gerðubergi á sunnudag klukkan 14. Það er Hlíf sem málar og Edda Lilja saumar. „Elsta myndin okkar sameiginlega er frá 2011 eða 2012. Aðferðin var dálítið lengi að malla þar til við fórum á flug,“ segir Edda Lilja. Hún viðurkennir að erfiðara sé að sauma í strigann en efnisbút eða stramma. „Ég get ekki farið niður og upp með nálina í sama skrefinu en finn mér leiðir og nálar sem duga. Fingurbjörg? Nei, ég hef aldrei getað notað fingurbjörg svo puttarnir fá bara að kenna á því.“Edda Lilja bæði saumar út í myndir Hlífar og krotar með tússi.Edda Lilja kveðst bæði sauma í myndir frænku sinnar og og nota alls konar garn eftir því hvaða áferð og litir henti. Svo kroti hún aðeins í þær með tússi. „En Hlín sýnir hrein málverk líka og ég fáeinar flíkur með frjálsum aðferðum.“ Þær frænkur vinna myndirnar til skiptis að sögn Eddu Lilju. „Svo eru þarna nokkrar gamlar myndir sem Hlíf var lengi búin að eiga uppi í skáp og ég fékk til að leika mér með þegar við vorum að byrja. Við ákváðum að taka þær með.“ Sýningin stendur til 20. júní og er opin frá klukkan 9 til 17 virka daga og 13 til 16 um helgar.
Menning Mest lesið Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Lífið Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Lífið Hugmyndir að hámhorfi um páskana Bíó og sjónvarp Páskabingó Blökastsins Lífið „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Lífið Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Lífið Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Lífið samstarf Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni Lífið Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Lífið Fleiri fréttir Settu tærnar upp í loft og fengu knús „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira