Stólarnir unnu Keflvíkinga með 23 stigum á Króknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2014 20:57 Darrel Keith Lewis. Vísir/Valli
Tindastóll komst upp að hlið KR-inga á toppi Dominos-deildar karla í körfubolta í kvöld þegar liðið vann 23 stiga sigur á Keflavík á Króknum í kvöld, 97-74. Tindastólsliðið, sem er nýliði í deildinni, hefur unnið fjóra leiki í röð og alls 6 af sjö deildarleikjum tímabilsins til þessa. Darrel Keith Lewis heldur áfram frábærri spilamennsku sinni og fór illa með sína gömlu félaga. Keflvíkingar mættu norður án Damon Johnson, Gunnars Einarssonar, Arnars Freys Jónssonar og þjálfarans Helga Jónasar Guðfinnssonar en það voru aðeins tíu Keflvíkingar á skýrslu í leiknum. Stólarnir unnu fyrsta leikhlutann 27-15 en Keflavíkurliðið kom muninum niður í átta stig hálfleik, 44-36. Stólarnir unnu tvo síðustu leikhlutana og á endanum leikinn með 23 stiga mun. Tindastólsmaðurinn Darrel Keith Lewis, sem spilaði með Keflavík í fyrra, fór á kostum gegn sínum gömlu félögum og var kominn með sextán stig í hálfleik. Hann endaði leikinn með 26 stig. Hinn stórefnilegi Pétur Rúnar Birgisson var með 18 stig og 8 fráköst fyrir Tindastólsliðið og Myron Dempsey bætti við 20 stigum og 15 fráköstum. Guðmundur Jónsson var atkvæðamestur hjá Keflavík með 23 stig en William Thomas Graves VI skoraði 18 stig.
Dominos-deild karla Mest lesið Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Golf Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Fótbolti Steven Gerrard orðinn afi Enski boltinn Hefur ekki hugmynd hvar Ólympíugullið hans er niðurkomið Golf Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Handbolti „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Körfubolti Dagskráin í dag: Snóker og golf, aftur Sport Fleiri fréttir Stólarnir verða með í Evrópukeppninni í vetur „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Elvar Már til Póllands Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Oladipo með augastað á endurkomu Enginn Kobe Bryant á topp tíu yfir þá bestu í sögunni Wembanyama fær grænt ljós frá læknateymi Spurs Raggi Nat á Nesið Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Stólarnir semja við spænskan leikstjórnanda Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Strákarnir unnu Slóvena á EM Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Sjá meira