Dómstóll ógildir þjálfarabann Zidane Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2014 18:00 Zinedine Zidane var aðstoðarmaður Carlo Ancelotti í fyrra. Vísir/Getty
Zinedine Zidane, einn fremsti knattspyrnumaður sögunnar, er ekki lengur í banni eftir að dómstóll á Spáni dæmdi þriggja mánaða þjálfarabann Frakkans ógilt. Zinedine Zidane má því þjálfa varalið Real Madrid á þessu tímabili. Zinedine Zidane var í október dæmdur í þriggja mánaða bann þar sem að hann var að mati spænska knattspyrnusambandsins ekki með nauðsynleg leyfi til þess að þjálfa lið í spænsku C-deildinni. Zidane hefur fengið að þjálfa Castilla-lið Real Madrid þrátt fyrir bannið en sami dómstóll gaf honum leyfi til þess á meðan áfrýjun Zidane var í kerfinu. Zidane heldur því fram að hann hefði klárað þjálfaramenntun sína í Frakklandi en spænska knattspyrnusambandið var ekki sammála því. Dómstóll tók hinsvegar upp málstað Zidane sem getur nú unnið á ný með framtíðarleikmenn Real Madrid. Zinedine Zidane var á sínum tíma besti knattspyrnumaður heims og hann var einnig um tíma sá dýrasti þegar Real Madrid keypti hann frá Juventus. Zidane varð heimsmeistari með Frökkum 1998 og var rekinn útaf í úrslitaleiknum á HM 2006 sem jafnframt var hans síðasti leikur á ferlinum.
Spænski boltinn Mest lesið Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Fótbolti Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Fótbolti Åge Hareide glímir við sjúkdóm Fótbolti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Fótbolti Skrautlegur ferðadagur Fótbolti Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af Fótbolti „Mamma vill bara að ég sé í ballett“ Sport FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Fótbolti Veðbankar telja mun líklegra að Ísland falli úr leik Fótbolti Fleiri fréttir Åge Hareide glímir við sjúkdóm Leiðin á HM: Sögulegar sættir í Varsjá Arna og Sædís spiluðu í sigri Våleranga „Eggert kominn með stóra brosið og allir glaðir“ Belgar í brasi og þurfa að bíða eftir HM-sæti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Bökuðu botnliðið í miðjum slag við Blika Tólfan boðar til partýs í Varsjá Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Lofar að fara sparlega með Isak Skrautlegur ferðadagur Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Veðbankar telja mun líklegra að Ísland falli úr leik Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Hvernig umspil færi Ísland í? Haaland sótti sjötíu hamborgara fyrir HM-farana Holland getur fagnað HM-sæti en Þýskaland þarf stig Króatar á HM en draumur Færeyja úti Afar óvænt tap þegar Finnar hylltu goðsögn Hjammi með mikla reynslu: „Kannski ekkert sérstakt í tuttugu tilraunum“ Rosenörn yfirgefur FH Taylor dæmir úrslitaleikinn í Varsjá Mikil spenna í Færeyjum enda HM-sætið enn möguleiki Montiel til KA Marta getur aftur unnið verðlaunin sem voru nefnd eftir henni Kominn í hóp þeirra fáu sem hafa verið heilan bílprófsaldur í landsliðinu Jafnaði við Arnór og Ríkharð á markalistanum Ronaldo gæti endað í leikbanni á HM næsta sumar Frændinn mætti með egg og gerði allt vitlaust Sjá meira