Grindavíkurkonur gáfu í eftir hálfleiksræðuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. október 2014 19:49 María Ben Erlingsdóttir.
Grindavík varð fyrsta liðið til að vinna tvo leiki í Dominos-deild kvenna í körfubolta eftir öruggan 23 stiga sigur á nýliðum Breiðabliks, 80-57, í fyrsta leiknum í 2. umferð í Smáranum í kvöld. Rachel Tecca, bandaríski framherjinn í liði Grindavíkur, er flottur leikmaður og var með 28 stig, 15 fráköst og 5 stolna fyrir Grindavík í kvöld. María Ben Erlingsdóttir var stigahæst af íslensku leikmönnum liðsins með 15 stig. Kristbjörg Pálsdóttir skoraði 13 stig en þau komu öll í fyrri hálfleiknum. Jóhanna Björk Sveinsdóttir var með 11 stig og 9 fráköst og Unnur Lára Ásgeirsdóttir skoraði 10 stig og tók 14 fráköst. Breiðablikskonur héldu í við Grindavíkurliðið í fyrri hálfleiknum þar sem liðið skoraði meðal annars sex þriggja stiga körfur. Grindavíkurkonur fengu greinilega orð í eyra frá Sverri Þór Sverrissyni þjálfari í hálfleik því þær spiluðu allt aðra og betri vörn í seinni hálfleiknum. Grindavík var fimm stigum yfir í hálfleik, 43-38, en stakk af í þriðja leikhlutanum sem liðið vann 22-8. Eftir það var sigur Grindavíkurliðsins aldrei í hættu. Grindavíkurliðið hefur þar með unnið tvo fyrstu leiki sína í deildinni en Blikakonur hafa aftur á móti tapað sínum tveimur leikjum.Breiðablik-Grindavík 57-80 (22-22, 16-21, 8-22, 11-15)Breiðablik: Kristbjörg Pálsdóttir 13/7 fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 11/9 fráköst, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 10/14 fráköst, Arielle Wideman 7/8 fráköst/6 stoðsendingar, Berglind Karen Ingvarsdóttir 5/4 fráköst, Ingunn Erla Kristjánsdóttir 4, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir 4, Aníta Rún Árnadóttir 3.Grindavík: Rachel Tecca 28/15 fráköst/5 stolnir, María Ben Erlingsdóttir 15, Pálína Gunnlaugsdóttir 10/7 fráköst, Jeanne Lois Figeroa Sicat 9, Petrúnella Skúladóttir 8/5 fráköst, Guðlaug Björt Júlíusdóttir 8, Ásdís Vala Freysdóttir 2, Elsa Katrín Eiríksdóttir 0, Julia Lane Figueroa Sicat 0, Jóhanna Rún Styrmisdóttir 0/3 varin skot, Ingibjörg Jakobsdóttir 0/6 stoðsendingar.
Dominos-deild kvenna Mest lesið „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ Körfubolti Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Körfubolti Ferill Jake Paul í hættu Sport Egyptaland - Ísland 30-31 | Skoruðu síðustu fjögur mörkin og tryggðu sér sigur Handbolti „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Íslenski boltinn McIlroy þurfti að hætta eftir þrjár holur Golf Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Körfubolti Blaðamannafundur KSÍ: Arnar valdi hóp sem mætir heimsmeisturunum Fótbolti Skrípamark kom í veg fyrir að Ronaldo yrði meistari í gær Fótbolti Gísli Þorgeir útskýrir fjarveru sína: „Ber ekkert nema virðingu fyrir landsliðinu“ Handbolti Fleiri fréttir Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Baldur hættur í Garðabænum Móðir heiðruð og ljótur olnbogi Búið spil hjá Elvari og félögum Martin stoðsendingahæstur í sigri Tryggvi Snær atkvæðamikill í súru tapi Arnar: Ákefðin var til staðar en hún var ekki á réttum hlutum Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf „Mér er drullusama um þessa tölfræði“ Umfjöllun og viðtal: Haukar - Njarðvík 80-92 | Heimavallarréttinum stolið Einum sigurleik frá Bónus deildinni Sjá meira