Íslandsmeistararnir byrja á sigri | 46 stiga sigur Keflavíkur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. október 2014 21:25 Snæfell byrjar vel. Vísir/Ernir
Domino's deild kvenna í körfubolta hófst í kvöld með fjórum leikjum. Liðin sem mættust í lokaúrslitunum í vor, Snæfell og Haukar, áttust við í Stykkishólmi, þar sem Snæfellskonur höfðu betur, 65-60. Íslandsmeistararnir leiddu í hálfleik með tveimur stigum, 28-26, en Haukakonur komu sterkar til leiks í seinni hálfleik. Þær unnu þriðja leikhluta með tíu stigum og leiddu með átta stigum, 39-47, fyrir lokaleikhlutann. Þar sýndu Snæfellskonur styrk sinn og sóknarleikur liðsins fór í gang. Svo fór að Snæfell vann með fimm stigum, 65-60.Kristen McCarthy skoraði 21 stig fyrir Íslandsmeistarana og tók sjö fráköst. Gunnhildur Gunnarsdóttir skoraði 17 stig og tók fjögur fráköst og fyrirliðinn Hildur Sigurðardóttir skoraði tíu stig, tók sex fráköst og gaf sjö stoðsendingar.Lele Hardy var venju samkvæmt atkvæðamest í liði Hauka, en hún skoraði 24 stig, tók 19 fráköst og gaf níu stoðsendingar, en tapaði boltanum hins vegar tíu sinnum.Snæfell-Haukar 65-60 (14-17, 14-9, 11-21, 26-13)Snæfell: Kristen Denise McCarthy 21/7 fráköst/6 stolnir, Gunnhildur Gunnarsdóttir 17/4 fráköst, Hildur Sigurdardottir 10/6 fráköst/7 stoðsendingar/5 stolnir, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 8, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 3, Rebekka Rán Karlsdóttir 2, María Björnsdóttir 2/4 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 2, Alda Leif Jónsdóttir 0, Rósa Indriðadóttir 0, Anna Soffía Lárusdóttir 0.Haukar: LeLe Hardy 24/19 fráköst/9 stoðsendingar/3 varin skot, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 11/7 fráköst, Dagbjört Samúelsdóttir 9, María Lind Sigurðardóttir 8, Guðrún Ósk Ámundadóttir 6/6 fráköst, Auður Íris Ólafsdóttir 2/5 fráköst, Sólrún Inga Gísladóttir 0, Rósa Björk Pétursdóttir 0, Inga Sif Sigfúsdóttir 0, Inga Rún Svansdóttir 0, Dýrfinna Arnardóttir 0, Þóra Kristín Jónsdóttir 0. Valskonur gerðu góða ferð í Vesturbæinn og unnu fjögurra stiga sigur, 67-71, á KR. KR byrjaði leikinn betur og leiddi með 11 stigum, 22-11, eftir fyrsta leikhluta. Valskonur, sem töpuðu fyrir Keflavík í úrslitaleik Lengjubikarsins um þarsíðustu helgi, vöknuðu hins vegar til lífsins í öðrum leikhluta, sem þær unnu með átta stigum. Staðan í hálfleik var 36-33, KR í vil. Staðan var jöfn eftir þriðja leikhluta, 54-54, en Valskonur reyndust sterkari undir lokin og unnu með fjórum stigum, 67-71.Joanna Harden fór fyrir Valsliðinu með 25 stig og níu fráköst. Ragnheiður Benónísdóttir átti einnig flottan leik og skilaði tvöfaldri tvennu; 16 stigum og 16 fráköstum.Brittany Wilson var stigahæst í liði KR, með 17 stig, en hún tók einnig 11 fráköst og gaf átta stoðsendingar.KR-Valur 67-71 (22-11, 14-22, 18-21, 13-17)KR: Brittnay Wilson 17/11 fráköst/8 stoðsendingar, Bergþóra Holton Tómasdóttir 16/6 fráköst/5 stoðsendingar, Helga Einarsdóttir 12/14 fráköst, Björg Guðrún Einarsdóttir 11/5 fráköst/5 stoðsendingar, Sara Mjöll Magnúsdóttir 7/6 fráköst, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir 4, Eyrún Líf Sigurðardóttir 0, Perla Jóhannsdóttir 0, Ragnhildur Arna Kristinsdóttir 0, Sólrún Sæmundsdóttir 0, Þórkatla Dagný Þórarinsdóttir 0, Aníta Eva Viðarsdóttir 0.Valur: Joanna Harden 25/9 fráköst, Ragnheiður Benónísdóttir 16/16 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 14/5 fráköst/5 stoðsendingar, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 9/8 fráköst/5 varin skot, Kristrún Sigurjónsdóttir 4/5 fráköst, Fanney Lind Guðmundsdóttir 2, Sóllilja Bjarnadóttir 1, Bergdís Sigurðardóttir 0, Sara Diljá Sigurðardóttir 0, Margrét Ósk Einarsdóttir 0, Bylgja Sif Jónsdóttir 0. Í Grindavík unnu heimakonur 13 stiga sigur á Hamri, 93-80. Grindavík var alltaf með yfirhöndina í leiknum, en staðan í hálfleik var 55-40.Rachel Tecca skoraði mest fyrir Grindavík, eða 32 stig, en hún tók einnig átta fráköst. María Ben Erlingsdóttir skoraði 22 stig og tók átta fráköst.Andrina Rendon var atkvæðamest í liði Hamars með 36 stig, 13 fráköst og sex stoðsendingar.Grindavík-Hamar 93-80 (29-11, 26-29, 23-19, 15-21)Grindavík: Rachel Tecca 32/8 fráköst, María Ben Erlingsdóttir 22/8 fráköst, Jóhanna Rún Styrmisdóttir 9, Ásdís Vala Freysdóttir 8/8 fráköst, Petrúnella Skúladóttir 8/10 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir 7, Jeanne Lois Figeroa Sicat 3/5 stoðsendingar, Guðlaug Björt Júlíusdóttir 3, Ingibjörg Jakobsdóttir 1/7 stoðsendingar, Guðný Dröfn Guðbjartsdóttir 0, Lilja Ósk Sigmarsdóttir 0, Hrund Skuladóttir 0.Hamar: Andrina Rendon 36/13 fráköst/6 stoðsendingar/10 stolnir, Þórunn Bjarnadóttir 13/9 stoðsendingar, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 10/5 fráköst, Sóley Guðgeirsdóttir 9, Katrín Eik Össurardóttir 8, Jóna Sigríður Ólafsdóttir 3/4 fráköst, Jóhanna Herdís Sævarsdóttir 1, Vilborg Óttarsdóttir 0, Helga Vala Ingvarsdóttir 0. Þá vann Keflavík, sem er spáð sigri í Domino's deildinni, risasigur á Breiðabliki, 92-46, suður með sjó. Blikakonur áttu aldrei möguleika í leiknum, en staðan í hálfleik var 54-22.Carmen Tyson-Thomas var stigahæst í liði heimakvenna með 22 stig og níu fráköst. Sara Rún Hinriksdóttir kom næst með 13 stig og sex fráköst. Arielle Wideman skoraði 13 stig fyrir Breiðablik.Keflavík-Breiðablik 92-46 (24-14, 20-8, 24-12, 24-12)Keflavík: Carmen Tyson-Thomas 22/9 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 13/6 fráköst, Ingunn Embla Kristínardóttir 11/4 fráköst, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 10, Marín Laufey Davíðsdóttir 9/4 fráköst, Sandra Lind Þrastardóttir 9/4 fráköst, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 8, Lovísa Falsdóttir 3, Bríet Sif Hinriksdóttir 3, Thelma Dís Ágústsdóttir 2, Hallveig Jónsdóttir 2, Elfa Falsdottir 0.Breiðablik: Arielle Wideman 13/7 fráköst, Berglind Karen Ingvarsdóttir 9/5 fráköst, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 7/4 fráköst, Ísabella Ósk Sigurðardóttir 6/5 fráköst, Guðrún Edda Bjarnadóttir 3, Elín Kara Karlsdóttir 2, Ingunn Erla Kristjánsdóttir 2/4 fráköst, Hafrún Erna Haraldsdóttir 1, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 1, Kristbjörg Pálsdóttir 1, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir 1, Aníta Rún Árnadóttir 0.
Dominos-deild kvenna Tengdar fréttir KR og Keflavík verða Íslandsmeistarar næsta vor KR og Keflavík var spáð Íslandsmeistaratitlinum í körfubolta körfuboltanum á árlegum kynningarfundi fyrir Dominos-deildirnar sem haldin var í Laugardalshöllinni í hádeginu. 7. október 2014 11:24 Umfjöllun og viðtal: Snæfell - Haukar 72-69 | Íslandsmeistararnir höfðu betur Snæfell tryggði sér í dag sigur í Meistarakeppni KKÍ með þriggja stiga sigri, 72-69, á Haukum í árlegum leik Íslands- og bikarmeistaranna í körfubolta. 5. október 2014 15:20 Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Aldrei spilað þarna en sagði strax já Enski boltinn Dagskráin í dag: Messan, meistarar Víkings, píla og NFL-veisla Sport Fleiri fréttir Njarðvík búin að losa sig við De Assis Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Elvar stigahæstur en fékk ekki sigur í jólagjöf Martin mættur aftur inn á völlinn og liðið hans endaði taphrinuna Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Meisturunum fatast flugið „af því hitt liðið er betra“ Jólagleði í Garðinum Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Missti alveg stjórn á skapinu en það skilaði sigri Stórstjarna úr WNBA-deildinni í heimsókn á Íslandi ÍR-ingar bæta við sig reyndum og hittnum Króata Í bann fyrir að kasta flösku í barn Hjalti Þór ráðinn aðalþjálfari Álftaness Kolbrún María kom við sögu í endurkomu Hannover Næstframlagshæstur í grátlegu tapi Fékk næstum 4,5 milljóna króna sekt fyrir að sýna dómara fingurinn „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Stjarnan - Álftanes 108-104 | Unnu grannaslaginn naumlega Uppgjörið: Ármann - ÍA 102-83 | Ármann náði í gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni með sigri gegn Skagamönnum Jokic tók NBA-met af Abdul-Jabbar í nótt KR á frábærum stað en getur ekki unnið titilinn Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega að líta í kringum mig“ Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 93-83 | Enn taplausir í Sláturhúsinu „Ánægður að spila ekki betur en þetta en vinna samt“ „Svo lengi sem það er ekki jákvæð og góð umfjöllun um okkur erum við sáttir“ „Hefðum þurft að hafa heppnina með okkur í liði“ ÍR - Valur 82-85 | Baráttusigur í Breiðholti „Sáttur að geta farið heim, borðað vel og fengið mér nokkra kalda“ Tindastóll - KR 130-117 | Kláruðu gestina í seinni hálfleik Sjá meira
KR og Keflavík verða Íslandsmeistarar næsta vor KR og Keflavík var spáð Íslandsmeistaratitlinum í körfubolta körfuboltanum á árlegum kynningarfundi fyrir Dominos-deildirnar sem haldin var í Laugardalshöllinni í hádeginu. 7. október 2014 11:24
Umfjöllun og viðtal: Snæfell - Haukar 72-69 | Íslandsmeistararnir höfðu betur Snæfell tryggði sér í dag sigur í Meistarakeppni KKÍ með þriggja stiga sigri, 72-69, á Haukum í árlegum leik Íslands- og bikarmeistaranna í körfubolta. 5. október 2014 15:20
Uppgjörið: Ármann - ÍA 102-83 | Ármann náði í gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni með sigri gegn Skagamönnum