Leghálsinn sigga dögg kynfræðingur skrifar 16. september 2014 11:00 Leghálsinn er "loka“ á milli legganga og legs. Mynd/Skjáskot
Í kynfræðslutímum hjá mér sýni ég ljósmynd af leghálsinum. Flestir nemendur hafa enga hugmynd um hvað í ósköpunum þetta sé og hafa jafnvel aldrei heyrt orðið né geta staðsett það í mannslíkamanum. Margir giska á að þetta sé typpi. Ég kalla leghálsinn „lok“ legganganna og ástæðu þess að typpi fer ekki upp í leg þegar samfarir við lim eru stundaðar eða að túrtappinn týnist ekki. Útum leghálsinn kemur blóð og útferð og inn um hann synda sáðfrumur (ef sæði er í leggöngum). Leghálsinn er staðurinn sem teygist á, þegar við tölum um 10 í útvíkkun þá tölum við um víkkun leghálsins, svo barn geti fæðst en „lokast“ svo aftur eftir það. Umræða um leghálsinn snýr oft að krabbameini og HPV veirunni og því er mikilvægt að vita hvernig líkaminn sinn verkar og hvað þarf að gæta sérstaklega að.Legháls 25 ára gamallar konu sem hefur aldrei fætt barn né fengið kynsjúkdómMynd/SkjáskotÍ kynferðislegu samhengi er gott að hafa í huga að næmni leghálsins er ekki sérstaklega mikið og þegar menn tala um að stærra sé betra þá er það ekki svo að betra sé að fá mikla örvun á leghálsinn, það er frekar taugaendasnauður staður. Sum þykir óþægilegt að fá örvun á legghálsinn en það getur verið misjafnt eftir því hvar þú ert stödd á tíðahringnum. The beautiful cervix project er frábær vefsíða sem sýnir ljósmyndir af leghálsinum á konum á ólíkum aldri og á mismunandi tímum tíðahringsins. Ef þig langar að skoða þinn eigin legháls þá getur þú keypt græjur til þess og jafnvel tekið þátt í þessu ótrúlega áhugaverða verkefni.
Heilsa Lífið Mest lesið Hver þarf pizzu þegar Laufey er komin á sviðið? Gagnrýni Þau flottustu og mest púkó á Óskarnum Tíska og hönnun One Battle After Another bar sigur úr býtum Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Lífið Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“ Lífið Íslendingur fagnaði Óskarsverðlaunum Lífið Súperstjarna tískuheimsins klæddi Laufeyju Tíska og hönnun Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Lífið Bæði fyrsta konan og svarta manneskjan til að vinna Bíó og sjónvarp Elín Hall í sjóðheitri íslenskri hönnun Tíska og hönnun