Fyrsti Range Roverinn boðinn upp Finnur Thorlacius skrifar 13. ágúst 2014 09:51 Þessi bíll er fyrsti range Roverinn sem smíðaður var. Autoblog
Fyrsta eintakið af Range Rover sem framleitt var af Land Rover verksmiðjunum bresku verður boðið upp á Silverstone uppboðinu í London þann 4. september. Þessi bíll var settur saman 6 mánuðum áður en sala á Range Rover hófst og undirvagn hans er með raðnúmerið 001, því til staðfestingar að hér sé á ferð fyrsti framleiddi bíllinn af gerðinni Range Rover. Búist er við að það fáist 100.000-140.000 pund fyrir bílinn, eða 19-27 milljónir króna. Það er nokkurnveginn á pari við að kaupa sér nýjan Range Rover bíl. Þetta fyrsta eintak bílsins var talið glatað, en bíllinn fannst svo rétt fyrir aldamótin síðustu og hafði þá verið sprautaður með gulllitu lakki og hafði fengið annað skráningarnúmer en í fyrstu. Bíllinn var svo gerður upp í sinni upphaflegu mynd og fékk aftur sinn upphaflega lit. Hann er því í fullkomnu ástandi og alveg eins og hann var er hann rúllaði út úr verksmiðju Land Rover árið 1969.
Mest lesið Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Innlent Segist saklaus Innlent „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Innlent „Allt lýðræðið þurrkað út“ Innlent „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Innlent Óvissustig í Súðavíkurhlíð Innlent Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Innlent Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Innlent Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Innlent