Flenging fullkomnuð sigga dögg kynfræðingur skrifar 17. júlí 2014 14:00 Heidi Klum ofurfyrirsæta lætur hér ungan herramann finna fyrir lófanum. MYND/GETTY
Ef þú hugsar um flengingu í kynferðislegu samhengi þá ímyndar þú þér eflaust að það sé lítið mál að flengja, bara láta lófann vaða á næsta bossa. Það væri kurteisara að biðja um leyfi og spyrja hvort þú megir rasskella viðkomandi áður en þú lætur vaða og er þetta hluti af kynlífi margra einstaklinga. Hér erum við bara að tala um lófa, ekki svipu eða eitthvað verkfæri, það er eitthvað svo „mikið“, eins og svona formlegt kink eða BDSM. Eða svo taldi ég. Það var ekki fyrr en ég kynntist BDSM hópnum á Íslandi sem ég komst að því að allt sem ég taldi mig vita um flengingu í kynferðislegu samhengi hafði ég misskilið svona líka hrapalega. Það er ákveðin kúnst að flengja, í raun það mikil kúnst að það eru reglulega haldin öryggis- og leiðbeiningarnámskeið um hvernig skuli bera sig að. Það gilda nefnilega strangar reglur um þessi mál. Þú þarft að passa á hvaða líkamssvæði það er öruggt að flengja og aflið sem þú notar. Rassinn hentar einkar vel því það er fituríkt svæði. Það þarf að huga að beinum, líffærum og öðrum viðkvæmum svæðum sem geta orðið fyrir skaða þegar verið er að flengja. Flenging snýst nefnilega ekki um aflið og að flengja sem fastast heldur að gera það sem oftast með góðum takti. Og það getur meira að segja verið mjög flókið að munda litlum písk. Þannig að ef bólfélaginn spyr hvort hann eða hún megi flengja, vertu þá viss um að viðkomandi uppfylli gæða- og öryggisstaðla og viti nú örugglega hvernig skuli bera sig að til að hámarka unað. Ef þú vilt kynna þér BDSM nánar þá er þessi vefsíða með marga góða pistla.
Heilsa Lífið Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Menning Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Lífið