Samfarir við sólarupprás sigga dögg kynfræðingur skrifar 10. júlí 2014 09:00 Morgunstund gefur gull í mund Mynd/Getty
Innri líffræðilega klukka einstaklinga er ólík og á það einnig við um hvaða tími sé hentugastur fyrir einhvers konar kynlíf og kelerí. Hjá sumum er það morguninn, öðrum eftirmiðdagurinn og enn öðrum kvöldin. Það sem mestu skiptir í þessu samhengi er að samræma sig við bólfélagann sinn og aðstæðurnar. Þeir sem eru kvöldsvæfir gætu reynt að kela á morgnanna eða jafnvel hist í hádeginu í „einn snöggan“. Gott er að hafa í huga að einn snöggur geta verið innilegar gælur, með fingrum og/eða munni. Mikið hefur verið skrifað um að vekja bólfélagann með kynferðislegum atlotum en áður en það er gert þarf að huga að nokkrum atriðum og ræða það við bólfélagann. Það er mikilvægt að hafa í huga í þessu samheng að sofandi manneskja getur ekki gefið samþykki fyrir kynlífi. Það þarf því að kanna hjá bólfélaganum hvort hann eða hún vilji vera vakinn í kynferðislegum atlotum og upp að hvaða marki (hvað má og hvað ekki). Þá er gott að hafa í huga að stinning lims er ekki merki um samþykki heldur lífeðlislegt ferli sem á sér stað í líkamanum, stinnur limur er ekki samasem merki um að hefja skuli kynlíf. Kynlíf og kelerí eru ekkert annað en samræður svo talið saman og samstillið klukkuna ykkar.
Heilsa Lífið Mest lesið Hver þarf pizzu þegar Laufey er komin á sviðið? Gagnrýni Þau flottustu og mest púkó á Óskarnum Tíska og hönnun One Battle After Another bar sigur úr býtum Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Lífið Bæði fyrsta konan og svarta manneskjan til að vinna Bíó og sjónvarp Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“ Lífið Elín Hall í sjóðheitri íslenskri hönnun Tíska og hönnun Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Lífið Snædís stigin á svið í Bocuse d´Or Matur Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Lífið samstarf