Reykspólað af stað í rallinu um helgina 22. maí 2014 16:30 Henning Ólafsson og Árni Gunnlaugsson, núverandi Íslandsmeistarar, eru hér á fleygiferð. mynd/þórður birgisson
Fyrsta umferð Íslandsmótsins í ralli fer fram á laugardaginn. Keppnin fer fram á leiðinni um Djúpavatn og endar með að ekið verður í tvígang leiðina um Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði. Óhætt er að segja að Hvaleyrarvatnsleiðin henti áhorfendum vel þar sem auðvelt er að leggja bílum við hliðina á leiðinni og fara að horfa á. Íslandsmeistararnir Henning Ólafsson og Árni Gunnlaugsson mæta á Subaru með nýja og öflugri vél. Þeir óku af yfirvegun í fyrra en nú hefur keppnin harðnað þar sem flestar áhafnir eru á svipuðum bílum og reiknað er með harðri keppni. Tveir fyrrverandi Íslandsmeistarar eru skráðir til leiks. Daníel Sigurðsson ásamt systir sinni, Ástu, en þau aka á Subaru. Einnig mætir Hilmar B. Þráinsson ásamt Elvari Jónssyni en þeir aka á Mitsubishi. Allar þessar áhafnir ætla sér sigur og ekkert annað. Ein er sú áhöfn sem vert er að minnast á. Baldur Haraldsson og Aðalsteinn Símonarson á Subaru. Þeir hafa verið lánlausir og koma titlalausir frá harðri keppni í flokki aflminni bíla. Nú mæta þeir á bíl sem smíðaður er af bílasmiðju fyrrum heimsmeistara, Tommy Makkinen. Jóhannes og Ásgeir mæta á Mitsubishi-bíl sem hefur skilað titli og getur það enn. Jóhannes hefur unnið keppni og er með blóðbragðið í munninum og verður að teljast með sem hugsanlegur sigurvegari.Daníel og Ásta Sigurðarbörn eru hér í pollinum.mynd/þórður birgissonÍ harðri keppni getur allt gerst og þær þrjár áhafnir sem verma verðlaunapallinn hafa ekki alltaf verið taldar líklegar til afreka. Það þarf ekki mikið að gerast til að minni spámenn komi upp á milli og það er nóg af þeim í keppninni. Sigurður Óli Gunnarsson (Bróðir áðurnefnds Jóhannesar) mætir með fjölmiðlakonuna Malin Brand á Toyota Celica. Sigurður hefur alla tíð keyrt upp á ánægjuna og nýtt dekkin lengur en allir aðrir. Nú ber svo við að Sigurður ekur á nýjum dekkjum og þar sem dekk skipta öllu máli í ralli verða þau að teljast algert spurningamerki fyrirfram. Þeir Sigvaldi og Skafti á Subaru fóru sér ekki óðslega á sínu fyrsta keppnisári í fyrra. En hraðinn kemur með æfinguni og þessi áhöfn gæti alveg komið á óvart. Yngsti ökumaðurinn í keppninni er Gunnar Karl (sonur áðurnefnds Jóhannesar), hann ekur á Mitsubishi, ásamt frænku sinni, Elsu Sigurðardóttir. Í flokki aflminni bíla eru þrjár áhafnir skráðar. Þeir Guðmundur Höskuldsson ásamt Ólafi Ólafssyni, margfaldir meistarar í þessum flokki og teljast sigurstranglegir. Baldur Hlöðversson og Guðni Ómarsson mæta á Subaru. Baldur hefur þurft að sætta sig við annað sætið oftar en hann kærir sig um á meðan Guðni hampar meistaratitli. Spurning hvort þeir nái að velgja Guðmundi og Ólafi undir uggum. Þeir Sigurður Pálsson og Brynjar Guðmundsson hafa oft sýnt mikinn hraða og gætu rétt eins orðið spútnikar keppninnar. Áhorfendur myndbandavefsins youtube.com hafa ef til vill séð myndskeið innan úr bíl þeirra á leiðinni um Mælifellsdal, þar sem Brynjar ældi og fékk blóðnasir. Það var ófögur sjón en með húmorinn að vopni gerðu þeir myndbandið ódauðlegt. Stjórnarmaður BÍKR, Björgvin Benediktsson mætir ásamt Gunnari Hjaltasyni á Suzuki. Björgvin var beðinn um að vera eftirfari af einum stjórnanda keppninnar, hann svaraði að bragði að hann væri það og vísaði þar með í þau líkindi að hann ætti lítinn möguleika á að blanda sér í þá hörkubaráttu sem fyrirséð er á laugardaginn.
Innlendar Mest lesið Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Fótbolti Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Fótbolti Åge Hareide glímir við sjúkdóm Fótbolti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Fótbolti „Mamma vill bara að ég sé í ballett“ Sport Skrautlegur ferðadagur Fótbolti Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af Fótbolti Leiðin á HM: Sögulegar sættir í Varsjá Fótbolti FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Fótbolti Fleiri fréttir Skotar og Danir spila úrslitaleik um farseðil á HM Vigdís Lilja á skotskónum Tumi Rúnarsson með fjögur mörk í sigri Ómar og Gísli í aðalhlutverkum hjá Magdeburg í dag Hákon: Þú vilt spila þessa leiki Haukar úr leik í Evrópubikar kvenna Svakalegt kvöld framundan í Úrvalsdeildinni í pílu Spánn og Austurríki við það að komast á HM ´26 Elvar með flestar stoðsendingar í sigri ÍBV með öruggan sigur í Garðabænum Åge Hareide glímir við sjúkdóm Leiðin á HM: Sögulegar sættir í Varsjá Misjafnt gengi Íslendinga í skandinavískum handbolta Arna og Sædís spiluðu í sigri Våleranga „Eggert kominn með stóra brosið og allir glaðir“ Selfoss lagði KA/Þór fyrir norðan Belgar í brasi og þurfa að bíða eftir HM-sæti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Bökuðu botnliðið í miðjum slag við Blika Úti er ævintýri hjá Elínu Klöru en HM tekur við Tólfan boðar til partýs í Varsjá Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Lofar að fara sparlega með Isak Skrautlegur ferðadagur Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Veðbankar telja mun líklegra að Ísland falli úr leik Mario sleit krossband: „Gríðarlegt áfall fyrir Njarðvík“ Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning „Mamma vill bara að ég sé í ballett“ Sjá meira