Iniesta glímdi við vægt þunglyndi fyrir HM 2010 Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. mars 2014 22:30 Iniesta skorar hér sigurmarkið í úrslitaleik HM 2010. Vísir/Getty
Andrés Iniesta segir að það hafi verið ólýsanleg tilfinning að skora sigurmarkið í úrslitaleik HM í Suður-Afríku. Iniesta viðurkenndi þó í viðtali sem birtist í Foot-tímaritinu að hann hafi glímt við þunglyndi í aðdraganda úrslitakeppni HM 2010. „Ég var með vægt þunglyndi en ég held að allir gangi í gegnum slíkt einhvern tímann á sinni ævi,“ sagði Iniesta í viðtalinu en sigurmark gegn Hollandi í úrslitaleiknum tryggði Spánverjum fyrsta heimsmeistaratitil landsins frá upphafi. „Ég var að glíma við ýmis vandamál í mínu einkalífi og smávægileg meiðsli þar að auki. Mér fannst ég vera viðkvæmur.“ „Það var svo eins og að öll jákvæðu lýsingarorðin í orðabókinni hafi sameinast þegar ég skoraði markið. Ég þurfti að bíða eftir að boltinn skoppaði fyrir mig áður en ég skaut. Ég lét þyngdaraflið um sitt og ég skoraði. Newton að verki!“ Iniesta sagði einnig frá æsku sinni í viðtalinu og að Michael Laudrup hafi verið hans uppáhaldsleikmaður. Þegar hann yfirgaf svo heimabæ sinn til að fara í hinn margrómaða La Masia-akademíu Barcelona hafi hann í fyrstu átt erfitt uppdráttar. „Það var erfiðasta reynsla lífs míns en það tók mig marga mánuði að jafna mig. Ég grét hvert einasta kvöld í herberginu mínu.“ „Ég hefði þó séð eftir því í dag hefði ég ekki komið aftur til Barcelona.“
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Spænski boltinn Mest lesið Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Fótbolti Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Fótbolti Skrautlegur ferðadagur Fótbolti „Mamma vill bara að ég sé í ballett“ Sport Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af Fótbolti Haaland sótti sjötíu hamborgara fyrir HM-farana Fótbolti FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Fótbolti Veðbankar telja mun líklegra að Ísland falli úr leik Fótbolti Mario sleit krossband: „Gríðarlegt áfall fyrir Njarðvík“ Körfubolti Fleiri fréttir Bökuðu botnliðið í miðjum slag við Blika Tólfan boðar til partýs í Varsjá Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Lofar að fara sparlega með Isak Skrautlegur ferðadagur Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Veðbankar telja mun líklegra að Ísland falli úr leik Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Hvernig umspil færi Ísland í? Haaland sótti sjötíu hamborgara fyrir HM-farana Holland getur fagnað HM-sæti en Þýskaland þarf stig Króatar á HM en draumur Færeyja úti Afar óvænt tap þegar Finnar hylltu goðsögn Hjammi með mikla reynslu: „Kannski ekkert sérstakt í tuttugu tilraunum“ Rosenörn yfirgefur FH Taylor dæmir úrslitaleikinn í Varsjá Mikil spenna í Færeyjum enda HM-sætið enn möguleiki Montiel til KA Marta getur aftur unnið verðlaunin sem voru nefnd eftir henni Kominn í hóp þeirra fáu sem hafa verið heilan bílprófsaldur í landsliðinu Jafnaði við Arnór og Ríkharð á markalistanum Ronaldo gæti endað í leikbanni á HM næsta sumar Frændinn mætti með egg og gerði allt vitlaust „Kom fyrstur út úr leikmannagöngunum með augnaráð sem hefði getað drepið“ Gaman í íslenska klefanum eftir leik Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Eggert Aron mætir fyrir úrslitaleikinn í Póllandi Skytturnar héldu fullkomnu flugi Englands áfram Sjá meira