Á haugnum er haninn frakkastur Silja Dögg Gunnarsdóttir og þingmaður Framsóknarflokksins skrifa 18. mars 2014 16:32 Ingólfur Bjarni Sigfússon nýmiðlastjóri RÚV fór mikinn í síðasta þætti Sunnudagsmorguns á RÚV. Þar fjallaði hann um nýja stöðu í makrílsamningaviðræðum líkt og hann væri öllum hnútum deilunnar kunnugur. Eitthvað hefur Ingólfi Bjarna fipast heimavinnan í þetta skiptið og í raun með ólíkindum að þáttastjórnandi hafi leyft honum að vaða áfram óáreittum í þeim staðreyndalausa málflutningi sem hann viðhafði. Umsjónarmenn pistilsins “Frá degi til dags” í Fréttablaðinu taka umræðuna svo skammlaust upp í blaði gærdagsins.Matskenndar ályktanir Ingólfur Bjarni hélt fram að Íslendingar fengju betri samninga á grunni samkomulags ESB, Noregs og Færeyja en það sem tilboð sem samninganefnd Íslands sótti við samningaborðið. Ingólfur Bjarni, og fleiri sem hafa tjáð sig um málið, ættu að staldra við og kynna sér málið betur. Fara fram með staðreyndir en ekki matskenndar ályktanir. Sjávarútvegsráðherra hefur ítrekað komið fram í viðtölum síðustu daga og rakið feril málsins. Málið var einnig til umræðu í þingsal Alþingis í síðustu viku. Spurningum hefur ávallt verið svarað skilmerkilega og engu haldið undan.Stærð makrílstofnsins vanmetinn Helstu staðreyndir eru m.a. þær að makríll hefur gert innrás á fæðusvæði okkar helstu nytjastofna og sjófugla í íslenskri lögsögu. Fiskveiðistjórnun Íslands hefur byggst á vísindalegum niðurstöðum en þær styðja þá skoðun að þessi breytta ganga makríls bendi til þess að stærð stofnsins hafi verið vanmetin. Þetta hefur Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) nú loks viðurkennt og á grunni breyttra upplýsinga hækkaði það ráðgjöf um heildarveiði úr stofninum um 64% á milli áranna 2013 og 2014.Ætla að borða alla kökuna og meira til Alla þá hækkun, hvert einasta kíló, taka Norðmenn og ESB sér einhliða árið 2014 skv. nýja samkomulaginu. Með þessu auka þeir veiðar sínar á milli ára umtalsvert, og bæta svo Færeyingum við. Því má segja að ESB og Noregur hafi boðið Færeyingum far – sá afli sem ætlaður er Færeyjum innan samningsins eru að vísu allur umfram ráðgjöf! Innan samningsins gera þeir svo ráð fyrir veiðum annarra, samanlagt um 150 þúsund tonn (allt umfram ráðgjöf). Svo má skilja að Rússar og Íslendingar eigi að skipta þeim tonnum á milli sín. Hvað með Grænland? Þeir ætla að veiða 100 þúsund ton. Ríkin þrjú töldu að ekki þyrfti að taka tillit til veiða Grænlendinga frekar en hagsmuna makrílstofnsins yfirleitt. Í ljósi breyttrar ráðgjafar ICES er nú raunveruleg og veruleg hætta á grófri ofveiði stofnsins sé veitt umfram ráðgjöf eins og samkomulag ríkjanna þriggja stuðlar að.Ofveiði ríkja Evrópusambandsins Það er jákvætt að Ísland sé ekki partur af þessu samkomulagi, því það stuðlar að veiðum í það minnasta 40% umfram vísindaráðgjöf. Verði þeim að góðu sem vilja fela ESB að semja um nýtingu stofna fyrir sig, eins og Ingólfur Bjarni ýjaði að í viðtalinu. Innan lögsögu ESB eru 30% af fiskistofna að hruni komnir og mun hærra hlutfall ofveitt, eða um 80%. Ástæðan er að gerðir hafa verið samningar þar sem hagsmunir einstakra ríkja ESB eru teknir framyfir hagsmuni lífríkisins. Er þetta ábyrg umgengni við auðlindir hafsins?Ætla sér að koma í veg fyrir að makríll gangi í lögsögu Íslands Ísland stóð ekki upp frá samningaborðinu eða sleit viðræðunum. Strandríkjaviðræðunum var slitið af samningamanni ESB sem stýrði úrslitafundinum í Edinborg. Enda gáfust ríkin þrjú upp á því að ræða niðurstöðu sem byggir á ábyrgri nýtingu, eins og Íslendingar vildu gera. Noregur ætlaði auk þess aldrei að samþykkja þann hlut sem Ísland gat sætt sig við. Í stað þess hefur Norðmönnum tekist að keyra í gegn samkomulag sem leiðir til verulegrar ofveiði. Þeir vita sem er, að þeim mun meira sem stofninn er veiddur niður – þeim mun minni líkur eru á að hann gangi inn í íslenska lögsögu og nýtist okkur til hagsbóta. Er það það sem Ingólfur Bjarni er að leggja til að hefði átt að vera niðurstaðan? Vilja menn eingöngu tala um það sem hljómar krassandi eða vilja menn ræða staðreyndir og koma þeim á framfæri?Lesendur Vísis geta sent inn greinar á ritstjorn@visir.is. Greinunum þarf að fylgja mynd af höfundi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Silja Dögg Gunnarsdóttir Mest lesið Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson Skoðun Skoðun Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Gasa: Löng og torfarin leið til endurreisnar Philippe Lazzarini skrifar Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samkeppni um hagsæld Ríkarður Ríkarðsson skrifar Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Húsnæðispakki fyrir unga fólkið og framtíðina Anna María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þegar úrvinnsla eineltismála klúðrast Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Virðum réttindi intersex fólks Daníel E. Arnarsson skrifar Sjá meira