Alfreð Finnbogason vonast eftir markaleik í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2014 15:30 Alfreð Finnbogason. Vísir/Pjetur
Alfreð Finnbogason stefnir örugglega að því að enda markaþurrð sína með íslenska landsliðinu í kvöld þegar liðið mætir Wales í vináttulandsleik í Cardiff. Alfreð er markahæsti leikmaður hollensku úrvalsdeildarinnar með 22 mörk í 23 leikjum en hefur ekki alveg náð að fylgja því eftir með íslenska landsliðinu en framherjinn náði aðeins að skora 1 mark í 8 landsleikjum sínum á árinu 2013. „Æfingaleikir eru öðruvísi en keppnisleikir og maður veit ekki hvort þeir eru að fara að prófa eitthvað nýtt eða stilli upp sínu sterkasta liði," sagði Alfreð Finnbogason um leik kvöldsins í viðtali á vefsíðunni fótbolti.net. „Það kom fram á fundi hjá okkur að þeir halda ekki mjög oft hreinu og við skorum oft mörk svo vonandi verður þetta markaleikur," sagði Alfreð. Alfreð Finnbogason skoraði síðast í landsleik á móti Slóveníu í júní í fyrra en hann hefur ekki náð að skora í síðustu fimm landsleikjum sínum þrátt fyrir að raða inn mörkum á sama tíma fyrir Heerenveen í Hollandi. Það er hægt að sjá allt viðtal Elvars Geirs Magnússonar við Alfreð með því að smella hér.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Totti í harðri forræðisdeilu um fjögur Rolex úr Fótbolti „Það var engin taktík“ Fótbolti „Labbar ekki inn í líkamsrækt og byrjar að sprauta í þig sterum“ Sport Toone með sögulega fullkomna tölfræði Fótbolti Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Körfubolti Raggi Nat á Nesið Körfubolti Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Körfubolti Mistök að ráða ekki Betu og „er ekki talað hávært um Óla Kristjáns“ Fótbolti Jóhannes kominn aftur heim en ekki með KR í kvöld Fótbolti Uppgjörið: ÍA - KR 1-0 | Skagamenn náðu fram hefndum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Totti í harðri forræðisdeilu um fjögur Rolex úr Toone með sögulega fullkomna tölfræði „Það var engin taktík“ Jóhannes kominn aftur heim en ekki með KR í kvöld Uppgjörið: ÍA - KR 1-0 | Skagamenn náðu fram hefndum Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan | Nauðsynlegur sigur fyrir Eyjamenn Sjáðu öll tíu mörk Messi í nýjasta metinu hans Árni farinn frá Fylki Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Skoraði sigurmark gegn Manchester United og er nú kominn til Barcelona „Mikið undir fyrir bæði lið“ Skoraði fjögur í fyrri hálfleik en öll voru dæmd af Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Ætla að spila HM-leikina meira innanhúss næsta sumar Tölfræðin á EM: Íslensku stelpurnar gáfu flestar sendingar á Cecilíu markvörð FHL bætir tveimur bandarískum við hópinn Trump vildi ekki fara af verðlaunapallinum Fékk gamlan mótherja sinn til að gráta af gleði Mistök að ráða ekki Betu og „er ekki talað hávært um Óla Kristjáns“ Sjáðu hvernig FH rassskellti KA-menn í Krikanum í gær Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Lamine Yamal í vandræðum eftir afmælisveisluna sína Systkinin leikjahæst: „Heiður að taka fram úr alvöru goðsögnum“ Sjáðu slagsmálin í lok úrslitaleiks HM félagsliða Leikmannasamtökin fengu ekki að mæta á fund um velferð leikmanna Chelsea pakkaði PSG saman Heimir: „Svo höfum við skitið í deigið“ Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Sævar Atli skoraði er Brann vann toppslaginn Leik lokið: England - Wales 6-1 | England flaug áfram Sjá meira