NBA: Ástin réð hraðanum í Minnesota Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2014 08:00 Kevin Love. Vísir/AP
Kevin Love og Ricky Rubio áttu báðir stórleik þegar Minnesota Timberwolves vann Indiana Pacers í NBA-deildinni í nótt, Patty Mills er að gera góða hluti í fjarveru Tony Parker, Dwight Howard tók með sér sigur heim frá Los Angeles og stórleikur Carmelo Anthony rétt dugði Knicks.Kevin Love var með 42 stig og 16 fráköst þegar Minnesota Timberwolves vann 104-91 heimasigur á Indiana Pacers og Ricky Rubio sett persónulegt met með því að gefa 17 stoðsendingar. Paul George skoraði 35 stig fyrir Indiana en aðeins tvö þeirra í lokaleikhlutanum í þessu þriðja tapi Indiana-liðsins í síðustu fimm leikjum. Kevin Love hefur nú verið með að minnsta kosti 25 stig og 10 fráköst í átta leikjum í röð en því hefur enginn náð síðan Shaquille O’Neal afrekaði það frá 3. til 19. janúar 2005.Patty Mills kom með 29 stig af bekknum og Marco Belinelli setti niður mikilvægan þrist í lokin þegar San Antonio Spurs vann 111-109 útisigur á Portland Trailblazers. Spurs var án bæði Tim Duncan og Tony Parker en Portland lék án stjörnuleikmannsins LaMarcus Aldridge. Belinelli skoraði 20 stig fyrir Spurs og Manu Ginobili var með 16 stig. Damian Lillard var stigahæstur hjá Portland með 31 stig.Dwight Howard var með 20 stig og 13 fráköst þegar nýja liðið hans Houston Rockets, heimsótti það gamla, Los Angeles Lakers, og vann öruggan 134-108 sigur. James Harden var með 29 stig og 11 stoðsendingar en hann skoraði 11 stig á síðustu 85 sekúndum leiksins. Wesley Johnson skoraði 24 stig fyrir Lakers og Kendall Marshall var með 20 stig og 16 stoðsendingar.Carmelo Anthony skoraði 42 stig þegar New York Knicks vann 98-91 útisigur á New Orleans Pelicans. New York missti niður 13 stiga forskot í fjórða leikhlutanum en Anthony setti niður þrjú mikilvæg skot á síðustu tveimur mínútunum.Úrslit í öllum leikjum NBA-deildarinnar í nótt: Charlotte Bobcats - Detroit Pistons 116-98 Cleveland Cavaliers - Orlando Magic 101-93 Toronto Raptors - Chicago Bulls 92-94 Atlanta Hawks - Washington Wizards 97-114 Minnesota Timberwolves - Indiana Pacers 104-91 New Orleans Pelicans - New York Knicks 91-98 Phoenix Suns - Boston Celtics 100-94 Utah Jazz - Brooklyn Nets 99-105 Portland Trail Blazers - San Antonio Spurs 109-111 Sacramento Kings - Golden State Warriors 92-101 Los Angeles Lakers - Houston Rockets 108-134Staðan í NBA-deildinni:
NBA Mest lesið Kólumbía - Portúgal | Toppsæti riðilsins undir Fótbolti Bielsa með böggum hildar: „Skildi ekkert eftir mig fyrir úrúgvæskan fótbolta“ Fótbolti Tveir kantmenn gætu verið úr leik hjá Evrópumeisturunum Fótbolti Bellingham braut ísinn og England vann riðilinn Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport Ummæli Tuchels um Reece James vekja furðu: „Enginn gat séð þetta fyrir“ Fótbolti Króatar tóku annað sætið af Ganverjum Fótbolti Sextán ára bjargaði Gróttu á Húsavík Íslenski boltinn Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira