Kraftur og fegurð til sýnis Finnur Thorlacius skrifar 28. febrúar 2014 14:30
Mörg orð hafa verið höfð um glæsibílinn Porsche Panamera frá því hann kom fyrst á markað árið 2009. Bílablaðamenn hafa farið mikinn og m.a. líkt Panamera við töfrateppi götunnar sem breyta má í villidýr með einni snertingu. Flestir eru sammála um eitt; að einn bíll skuli búa að báðum þessum kostum, þægindunum og sportlegum eiginleikunum, í svo ríkum mæli, sé einstakt.„Við kynnum núna á laugardaginn nýja útgáfu af Porsche Panamera. Satt að segja skortir mig orð til að lýsa honum og hvet því fólk til að koma í Porsche-salinn og skoða hann í návígi. Kraftur og fegurð Panamera lætur engan sannan bílaáhugamann ósnortinn,“ segir Thomas Már Gregers sölustjóri Porsche á Íslandi. Á morgun, laugardag 1. mars verður Bílabúð Benna með sérstaka laugardagsopnun í Porsche-salnum á Vagnhöfða, frá kl. 12:00 til 16:00 þar sem Panamera verður í fríðum hópi Porsche bifreiða.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent