ÍR-ingar höfðu betur á Króknum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. febrúar 2014 20:51 ÍR-ingar eru komnir í bikarúrslit. Vísir/Vilhelm
Breiðhyltingar sýndu klærnar í síðari hálfleik þegar liðið tryggði sér sæti í úrslitaleik Powerade-bikars karla með sigri á Tindastóli á Sauðárkróki, 87-79. Tindastóll, sem spilar í 1. deild, leiddi 23-14 að loknum fyrsta fjórðungi og enn voru heimamenn með frumkvæðið í hálfleik þegar staðan var 41-35 fyrir Stólana. Heimamenn með Antoine Proctor í farabroddi missti þó tökin á leiknum í þriðja leikhluta. Að honum loknum höfðu ÍR-ingar náð 60-56 en þó allt í járnum. Breiðhyltingum tókst þó að halda forystu sinni í lokafjórðungnum og var sigurinn aldrei í hættu. Nigel Moore setti 18 stig fyrir gestina og Matthías Orri Sigurðsson 17. Þá tók Moore 14 fráköst. Þá átti Hjalti Friðiksson góðan leik með 15 stig og 10 fráköst. Proctor skoraði 27 stig fyrir Stólana og tók 8 fráköst. Þá var Helgi Margeirsson með 18 stig. ÍR-ingar mæta Grindavík í úrslitaleiknum í Laugardalshöllinni þann 22. febrúar. Grindavík lagði Þór frá Þorlákshöfn í hinni undanúrslitaviðureigninni í Röstinni í kvöld.Tindastóll-ÍR 79-87 (23-14, 18-21, 15-25, 23-27)Tindastóll: Antoine Proctor 27/8 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 18, Pétur Rúnar Birgisson 11/8 fráköst, Ingvi Rafn Ingvarsson 8/4 fráköst, Darrell Flake 8/7 fráköst, Helgi Rafn Viggósson 7/9 fráköst.ÍR: Nigel Moore 18/14 fráköst, Matthías Orri Sigurðarson 17/8 fráköst/5 stoðsendingar, Hjalti Friðriksson 15/10 fráköst, Ragnar Örn Bragason 15, Sveinbjörn Claessen 11, Vilhjálmur Theodór Jónsson 6, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 5.
Dominos-deild karla Mest lesið Hættu við giftingu eftir sameiginlegt steggja- og gæsapartí Sport Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Fótbolti Sakar konung síðustu Vetrarólympíuleika um svindl Sport Vill að Messi segi sannleikann Fótbolti „Þetta er ógeðslegt starf“ Körfubolti „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Íslenski boltinn Sagði 35 sinnum fyrirgefðu við boltastrákinn Enski boltinn Tottenham geti fallið: „Allt við hans líkamstjáningu sem var vonlaust“ Enski boltinn „Vanmetnasti knattspyrnumaður heimsins“ Fótbolti Vann ÓL-gull fyrir framan átján ára dóttur sína Sport Fleiri fréttir Clark fór á kostum í fyrsta landsleiknum „Þetta er ógeðslegt starf“ Tryggvi með hæstu einkunn í flottum sigri Ævintýri Stólanna lauk á spennuleik Uppgjörið: Serbía - Ísland 92-66 | Stelpurnar okkar svæfðar í Serbíu Nablinn vill ræða við mannauðsstjórann hjá Sýn um þessa vitleysu Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Kristrún Ríkey í óvænt flug til Serbíu NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Tilþrif 19. umferðarinnar: Stjörnustrákar stukku hátt en Sigurður stal senunni „Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Jón Axel með lykilkörfu undir lokin í sigri á Tryggva Tindastóll - Grindavík 92-87 | Stólarnir lögðu topplið deildarinnar að velli í frábærum leik Uppgjörið: Valur - KR 92-90 | Valsmenn unnu eftir framlengingu Góður leikur Elvars dugði ekki til Handtekin fyrir að slá mann á kvöldi þegar hún fagnaði titlinum Taplausir yfir heilt tímabil og síðasti sigurinn var sá dramatískasti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ „Orkan og ástríðan var til fyrirmyndar“ „Stigin fyrir sigurinn það mikilvægasta“ „Hann er rosalegur“ ÍR - ÍA 86-83 | Falldraugurinn vofir yfir Skagamönnum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Þjálfari Almars lofar að mæta á sundskýlu ef þeir vinna Sjá meira