Lindberg: Duvnjak er besti handboltamaður í heimi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2014 18:00 Domagoj Duvnjak. Vísir/AFP
Hans Lindberg, hornamaðurinn í danska handboltalandsliðinu sem á íslenska foreldra, er á því að Króatinn Domagoj Duvnjak sé besti handboltamaður í heimi en ekki danska stórskyttan Mikkel Hansen eða franska jarðýtan Nikola Karabatic. Lindberg tjáði sig um Domagoj Duvnjak fyrir leik Dana og Króata í undanúrslitum Evrópumótsins í handbolta í kvöld. Lindberg þekkir Duvnjak mjög vel því þeir hafa verið liðsfélagar hjá þýska liðinu HSV Hamburg í fimm ár. „Hann er leikmaður sem spilar á mjög háu plani og er að mínu mati sá besti í heimi í dag. Hann getur spilað allar stöður fyrir utan og ef hann skorar ekki mörkin þá er hann arkitektinn á bak við þau," sagði Hans Lindberg við JV.dk. „Duvnjak er einnig frábær í hraðaupphlaupunum og þó að ég reyni þá er erfitt fyrir mig að finna eitthvað sem hann gerir ekki vel. Hann hefur frábært auga fyrir liðsfélögunum og stjórnar leik Hamburg-liðsins," sagði Lindberg. Domagoj Duvnjak hefur komið að 50 mörkum Króata á mótinu, Mikkel Hansen hefur átt þátt í 64 mörkum og Nikola Karabatic er maðurinn á bak við 53 mörk Frakka. Allir þessi þrír eru bæði með 23 mörk eða fleiri og 23 stoðsendingar eða fleiri.
EM 2014 karla Mest lesið „Allir í kringum íþróttir ættu að hafa áhyggjur“ Sport Messi laumaðist inn á leikvang Barcelona og lét engan vita Fótbolti Gummi Ben fékk hláturskast ársins Fótbolti Þurfa að borga háar fjárhæðir fyrir bílastæði á HM Fótbolti Missa af landsleik af því að þeir eru ekki bólusettir Fótbolti María valin nýliði ársins: Eins óútreiknanleg og Eyjafjallajökull Fótbolti Er ekki viss um að liðin á suðvesturhorninu væru til í þetta Sport „Menn beita öllum brögðum“ Enski boltinn Er framherji Brentford óvænt að banka á landsliðsdyrnar hjá Brasilíu? Enski boltinn Nagelsmann um Wirtz: Liðsfélagarnir í Liverpool gætu nú aðeins hjálpað honum Enski boltinn Fleiri fréttir Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Íslendingarnir atkvæðamiklir í kvöld Sandra með tíu í þrettán marka sigri ÍBV Engin skoraði meira en Elín Klara Með 32 mörk í síðustu þremur leikjum Þungt Evrópukvöld á Ásvöllum Valur steinlá gegn Blomberg-Lippe „Tækifæri fyrir aðra að stíga upp og sýna sig“ Bjarni með tíu og KA áfram í toppbaráttu Haukar við toppinn og HM-farar fögnuðu á Selfossi Ákvörðun þjálfarans að taka ekki átján leikmenn: „Hefur ekkert með fjárhagsstöðuna að gera“ „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ HM hópurinn tilkynntur: Margir reynsluboltar horfnir á braut „Við vorum sjálfum okkur verstir“ Baldur Fritz fór á kostum og Afturelding styrkti stöðuna Uppgjörið: Fram - Valur 27-36 | Arnór í banastuði gegn meisturunum Greint frá ráðningu á vef nýja þjálfarans Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Lovísa með níu í góðum sigri Allar landsliðskonurnar komust á blað Bikarmeistararnir fara norður Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Forðuðu sér frá bráðsmitandi óléttu í Fram Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 29-31 | Svöruðu skellinum með frábærum sigri Kærastan tók eftir því að eitthvað var að KA/Þór gerði jafntefli við botnliðið Sjá meira