Rússar unnu Serba og Króatar eru komnir áfram Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2014 18:40 Úr leik Króata og Svartfellinga í dag. Mynd/AFP
Rússar og Króatar unnu sína leiki á Evrópumótinu í handbolta í kvöld. Rússar unnu tveggja marka sigur á Serbum í C-riðli en Króatar eru komnir áfram upp úr D-riðli eftir fimm marka sigur á nágrönnum sínum í Svartfjallalandi. Króatar eru komnir áfram í milliriðil eftir 27-22 sigur á Svartfellingum. Króatíska liðið hefur unnið tvo fyrstu leiki sína á mótinu en liðið vann ellefu marka sigur á Hvít-Rússum í fyrsta leik. Svartfjallaland hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum en mæta Hvít-Rússum í úrslitaleik um sæti í milliriðlinum í lokaumferðinni. Króatar voru bara einu marki yfir í hálfleik, 13-12, en sýndu styrk sinni í seinni hálfleiknum sem liðið vann 14-10.Ivan Cupic skoraði sex mörk fyrir Króatíu en Manuel Strklek sem skoraði fjögur mörk var kosinn besti leikmaður liðsins. Vasko Sevaljevic var markahæstur hjá Svartfellingum með níu mörk. Rússar, sem Íslendingar unnu á æfingamótinu í Þýskalandi fyrir mót, unnu tveggja marka sigur í spennuleik á móti Serbum, 27-25. Staðan var 14-14 í hálfleik en Rússar tóku frumkvæðið með því að skora tvö fyrstu mörkin í seinni hálfleiknum. Serbar unnu eins marks sigur á Pólverjum í fyrstu umferðinni en tókst ekki að tryggja sig áfram í dag. Rússar komu hinsvegar sterkir til baka eftir sjö marka tap í fyrsta leik á móti Frökkum.
EM 2014 karla Mest lesið „Allir í kringum íþróttir ættu að hafa áhyggjur“ Sport Messi laumaðist inn á leikvang Barcelona og lét engan vita Fótbolti Gummi Ben fékk hláturskast ársins Fótbolti Þurfa að borga háar fjárhæðir fyrir bílastæði á HM Fótbolti Missa af landsleik af því að þeir eru ekki bólusettir Fótbolti María valin nýliði ársins: Eins óútreiknanleg og Eyjafjallajökull Fótbolti Er ekki viss um að liðin á suðvesturhorninu væru til í þetta Sport „Menn beita öllum brögðum“ Enski boltinn Er framherji Brentford óvænt að banka á landsliðsdyrnar hjá Brasilíu? Enski boltinn Nagelsmann um Wirtz: Liðsfélagarnir í Liverpool gætu nú aðeins hjálpað honum Enski boltinn Fleiri fréttir Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Íslendingarnir atkvæðamiklir í kvöld Sandra með tíu í þrettán marka sigri ÍBV Engin skoraði meira en Elín Klara Með 32 mörk í síðustu þremur leikjum Þungt Evrópukvöld á Ásvöllum Valur steinlá gegn Blomberg-Lippe „Tækifæri fyrir aðra að stíga upp og sýna sig“ Bjarni með tíu og KA áfram í toppbaráttu Haukar við toppinn og HM-farar fögnuðu á Selfossi Ákvörðun þjálfarans að taka ekki átján leikmenn: „Hefur ekkert með fjárhagsstöðuna að gera“ „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ HM hópurinn tilkynntur: Margir reynsluboltar horfnir á braut „Við vorum sjálfum okkur verstir“ Baldur Fritz fór á kostum og Afturelding styrkti stöðuna Uppgjörið: Fram - Valur 27-36 | Arnór í banastuði gegn meisturunum Greint frá ráðningu á vef nýja þjálfarans Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Lovísa með níu í góðum sigri Allar landsliðskonurnar komust á blað Bikarmeistararnir fara norður Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Forðuðu sér frá bráðsmitandi óléttu í Fram Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 29-31 | Svöruðu skellinum með frábærum sigri Kærastan tók eftir því að eitthvað var að KA/Þór gerði jafntefli við botnliðið Sjá meira