Af hverju er ég leikskólakennari? Haraldur F. Gíslason skrifar 25. maí 2013 06:00 Ég var frekar áttavilltur unglingur. Hvað mig langaði að verða þegar ég yrði stór var ekki mikið sem ég spáði í. Sérstaklega eftir að það varð ljóst að ég yrði seint atvinnumaður í knattspyrnu. Ég vil reyndar meina það að eina ástæðan fyrir því að ég varð ekki knattspyrnustjarna er sú að ég á afmæli í desember. Rannsóknir hafa sýnt að flestir þeir sem ná árangri í knattspyrnu eru fæddir snemma á árinu. Ég er ekki viss um að fyrrum þjálfarar mínir séu sammála þessari kenningu minni en það er nú önnur saga. Úr knattspyrnunni lá leið mín í tónlistina og þar fann ég mig vel. Ég stofnaði hljómsveit með vinum mínum og heimsfrægð var á næsta leiti. Rokkið átti vel við mig og við félagarnir þurftum ekkert mikið til að lifa. Bara smá vasapening endrum og sinnum fyrir brauði í föstu og fljótandi formi. Við vorum á leiðinni út í hinn stóra heim til að „meika“ það. Okkur vantaði bara smá pening fyrir farmiðanum. Mér datt í hug að sækja um starf í leikskóla. Ég var ráðinn. Ég lét alla vita sem vildu að ég ætlaði nú bara að stoppa þarna í nokkra mánuði á meðan ég væri að safna mér fyrir „meikfarmiðanum“. Leikskólakennari á staðnum sagði mér að hún hefði sagt það sama fyrir 20 árum og líklega færi eins fyrir mér því leikskólakennarastarfið væri skemmtilegasta og mest gefandi starf í heiminum. Mér fannst hún vera klikkuð. Hún hafði hins vegar algjörlega rétt fyrir sér.Kostaboð Starfið náði að heilla mig upp úr skónum. Það var svo mikið frelsi. Það var svo mikið af verkefnum. Börnin voru svo skemmtileg. Mest hafði ég gaman af þeim börnum sem þurfti að hafa svolítið fyrir. Þau áttu alltaf sérstakan stað í mínu hjarta. Mér var oft boðið gull og grænir skógar af þessum litlu vinum mínum: „Halli, af hverju kemur þú ekki og gistir heima hjá mér um helgina?“ Sagði einn snillingurinn einu sinni og bætti við: „Þú getur bara sofið á milli mömmu og pabba. Þú mátt borða eins mikið Lucky charms og þú vilt. Svo horfum við bara á teiknimyndir allan morguninn á meðan mamma og pabbi sofa“. Hvernig er hægt að neita slíku kostaboði? Sem betur fer tókst mér að hafna tilboðinu án þess að særa þennan vin minn. Mér gekk vel í starfi. Ég fékk hrós og hvatningu frá yfirmanni mínum. Hún leyfði mér að þróast í starfi og leiðbeindi mér inn á réttar brautir. Eftir fimm ára starf í leikskóla ákvað ég að sækja um í Kennaraháskóla Íslands og fékk inngöngu. Hugsunin um krefjandi háskólanám var vissulega íþyngjandi. En áhyggjur mínar reyndust óþarfar. Tíminn í „Kennó“ var einn besti tími lífs míns og þótt námið væri oft erfitt og verkefnin í skólanum mörg og krefjandi, gekk mér vel í námi. Leikskólakennaranám er frábært nám sem sinnt er af alúð bæði í Háskólanum á Akureyri og í Háskóla Íslands. Eftir útskrift hóf ég aftur störf á sama leikskóla og ég starfaði á áður en ég fór í Kennaraháskólann og nú með með meiri ábyrgð sem deildarstjóri. Starfið hélt áfram að veita mér gleði þó ábyrgðin yrði meiri. Það var frábært að geta nú nýtt sér alla sérfræðiþekkinguna sem maður fékk í náminu til þess að verða fagmaður og auka gæði kennslunnar. Ég á mörgum mikið að þakka sem leiðbeindu mér á réttar brautir. Bæði kennurum, samstarfsmönnum sem og börnum og foreldrum. Eftir að hafa starfað í leikskóla í 12 ár ákvað ég að bjóða mig fram sem formaður Félags leikskólakennara. Ég vildi reyna að gera gagn á þeim vettvangi. Starf formanns FL er krefjandi og skemmtilegt, en ég sakna alltaf starfsins í leikskólanum. Við val á námi og starfi þarf maður að meta allar hliðar. Kannski ert þú frábært efni í leikskólakennara án þess að hafa hugmynd um það. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Haraldur F. Gíslason Mest lesið Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson Skoðun Skoðun Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar Skoðun Fimm ára afmæli Batahúss Agnar Bragason skrifar Skoðun Takk! Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Gasa: Löng og torfarin leið til endurreisnar Philippe Lazzarini skrifar Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samkeppni um hagsæld Ríkarður Ríkarðsson skrifar Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Sjá meira
Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar