Stórt kvöld í körfunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. janúar 2013 06:30 Grindvíkingar komast á toppinn með sigri á heimavelli í kvöld.Fréttablaðið/vilhelm
Það verða tveir stórleikir í Dominosdeild karla í körfubolta í kvöld þegar fjögur efstu lið deildarinnar mætast innbyrðis í 14. umferðinni. Það hefur lítið skilið á milli efstu liðanna í vetur og á dögunum voru meðal annars öll fjögur efstu liðin með jafnmörg stig. Það er því von á jöfnum leikjum í kvöld. Grindavík og Þór eru nú jöfn í 1. og 2. sæti með 20 stig hvort félag og Snæfell og Stjarnan eru síðan í 3. til 4. sæti með 18 stig. KR og Keflavík eru síðan jöfn í 5. og 6. sæti með 16 stig en þau mætast í DHL-höllinni annað kvöld. Grindvíkingar komust í bikarúrslitaleikinn á sunnudaginn og í kvöld komast þeir á topp Dominos-deildar karla með sigri á Þór þegar þeir taka á móti Þorlákshafnarbúum í Grindavík í kvöld. Á sama tíma tekur Stjarnan á móti Snæfelli í Garðabæ. Það eru aðeins fjórir dagar liðnir frá því að Stjörnumenn fóru burtu úr Hólminum með farseðilinn í bikaúrslitaleikinn. Það eru ekki bara barist um stigin tvö í þessum leikjum því úrslitin hafa einnig áhrif á stöðu liðanna í innbyrðisleikjum. Þór hefur níu stiga forskot á Grindavík í innbyrðisleikjum eftir 92-83 sigur í Þorlákhöfn í október. Snæfell hefur sömuleiðis 16 stiga forskot á Stjörnuna eftir 110-94 sigur í Hólminum í október. Það eru fleiri lið sem geta haft sætaskipti í þessari umferð því í kvöld mætast einnig liðin í 8. og 9. sæti (Skallagrímur-Fjölnir) og á morgun mætast KFÍ og Tindastóll á Ísafirði en Stólarnir eiga þar möguleika á að komast upp úr fallsæti í fyrsta sinn í langan tíma. Síðasti leikur kvöldsins er síðan á milli íR og Njarðvíkur í Hertz Hellinum í Seljaskóla.
Dominos-deild karla Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Fleiri fréttir Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Sjá meira