Romo lagðist undir hnífinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. desember 2013 22:45 Romo í leiknum um síðustu helgi. Nordic Photos / Getty
Tony Romo, leikstjórnandi Dallas Cowboys í NFL-deildinni, á erfiða mánuði fram undan eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna bakmeiðsla í dag. Fyrr í vikunni héldu fjölmiðlar vestanhafs því fram að tímabilið væri búið hjá Romo vegna bakmeiðsla sem tóku sig upp í 24-23 sigri Dallas á Washington Redskins á sunnudaginn. Jason Garrett, þjálfari Dallas, sagði það ekki rétt og að enn væru vonir bundnar við að hann gæti spilað með liðinu í lokaumferð deildakeppninnar um helgina. Dallas mætir þá Philadelphia Eagles í hreinum úrslitaleik um sæti í úrslitakeppninni. Í dag varð endanlega ljóst að Romo spilar ekki meira á árinu. Hann þjáist af hryggþófaraski (e. herniated disc) og fór í dag í sína aðra aðgerð á baki á átta mánuðum. Romo, sem er 34 ára gamall, hefur verið aðalleikstjórnandi Dallas síðan 2006 en tókst aldrei að leiða lið sitt til sigurs í deildinni. Romo þykir í hópi betri leikmönnum deildarinnar í sinni stöðu en síðustu ár hefur lið Dallas oft brugðist þegar mest á reynir. Romo kláraði þó leikinn gegn Washington um síðustu helgi þrátt að hafa spilað þjáður síðasta fjórðunginn. Dallas skoraði þá tíu stig og tryggði sér eins stigs sigur sem fyrr segir. Garrett sagði í dag að hann reiknaði með því að Romo verði kominn aftur á fullt fyrir upphaf næstu leiktíðar í NFL-deildinni.
NFL Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Skoraði og fékk gult fyrir að benda Fótbolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Skoraði og fékk gult fyrir að benda Juventus stigi frá toppnum Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Aldrei spilað þarna en sagði strax já Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Njarðvík búin að losa sig við De Assis Íslendingarnir í miklum ham fyrir EM „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Mané tryggði Senegal stig Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Glímdi við augnsjúkdóm Þjálfari Þóris sá rautt í tapi fyrir Fabregas Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Tap hjá Tómasi í grannaslagnum og toppbaráttan harðnar Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Enn tapa Albert og félagar Handarbrotinn og missir af úrslitaleiknum Andri Lucas frá í mánuð Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Svakalegur derby-dagur fyrir Tómas Bent og félaga Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Syrgja átján ára fimleikakonu Sjá meira