Tvö Íslandsmet og brons í réttstöðulyftu hjá Arnhildi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. ágúst 2013 07:36 Arnhildur Anna. Mynd/Aðsend
Arnhildur Anna Árnadóttir úr Gróttu bætti persónulegan árangur sinn um 17,5 kg og setti tvö Íslandsmet ungmenna á HM í Texas í gær. Arnhildur keppti í -72 kg flokki og vó 70,76 kg við vigtun. Arnhildur, eða Anna sem þulirnir kusu að nefna hana, byrjaði á 160,0 kg í hnébeygju. Henni mistókst með 167,5 í annarri tilraun en í þeirri þriðju fóru lóðin á loft og nýtt Íslandsmet unglinga í höfn. Á bekknum endurtók sagan sig. Arnhildur byrjaði létt með 90,0 kg, mistókst með 95,0 í annarri tilraun en kláraði það svo örugglega í þriðju tilraun. Hún bætti persónulegan árangur sinn á bekknum um 5 kg. Í réttstöðu fór Arnhildur létt með að lyfta 162,5 kg. Hún fór beint í 170,0 kg og reif þyngdina upp af miklu öryggi og sett um leið Íslandsmet ungmenna. Í þriðju tilraun reyndi hún við 175,0 kg en tókst ekki. Bronsið vannst á 172,5 kg. Arnhildur endaði í 6.sæti með 432,5 kg samanlagt. Það er jöfnun við Íslandsmet ungmenna í samanlögðu og bætti sinn besta árangur um 17,5 kg. Sigurvegarinn í flokknum var Marte Elverum frá Noregi með 515,0 kg.
Íþróttir Mest lesið Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð Fótbolti Barnsmóðir NBA stjörnu hótaði að láta skera af honum puttana Sport Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag Fótbolti „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Fótbolti Byrjar meðferð vegna brjóstakrabbameins Handbolti Nýtt heimsmet sett: „Sé því að ég á að geta gert miklu betur“ Sport Alexander Máni seldur til Midtjylland Íslenski boltinn „Ef það verður ekki ég þá verður það bara einhver önnur“ Sport Einar tekur við Víkingum Íslenski boltinn „Er dómarinn bara alltaf í símanum?“ Sport Fleiri fréttir Fotios spilar 42 ára með Fjölni „Er dómarinn bara alltaf í símanum?“ „Við erum bara búin að fara í eina átt og það er upp“ „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Einar tekur við Víkingum Pogba og Fati mættir til Mónakó Sjáðu allan þáttinn um Norðurálsmótið Nýtt heimsmet sett: „Sé því að ég á að geta gert miklu betur“ Mikael orðinn leikmaður Djurgården Alexander Máni seldur til Midtjylland Byrjar meðferð vegna brjóstakrabbameins „Menn fundu aftur hvernig það er að vera í góðu liði“ Real rústaði Salzburg og vann riðilinn Barnsmóðir NBA stjörnu hótaði að láta skera af honum puttana Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð Dagskráin: Besta deildin, formúla, golf og pílukast Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag „Ég sé Messi ekki missa af HM 2026“ „Ef það verður ekki ég þá verður það bara einhver önnur“ Var uppi í áhorfendastúku þegar nafn hans var kallað upp í nýliðavali NBA Nýr liðsfélagi Íslendinganna hjá HamKam æfði undir fölsku nafni Njarðvíkingar með montréttinn í Reykjanesbæ og toppsæti deildarinnar City vann riðilinn og sleppur líklega við Real Madrid Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Elísabet stýrði Belgum til sigurs í generalprufunni fyrir EM Markadrottning afgreiddi mótherja Íslands í síðasta leik fyrir EM „Við vorum að rústa Íslandsmetinu“ Mbappé aftur með PSG í réttarsalinn og nú vegna eineltis Norsk handboltastjarna með krabbamein Sigur og tap í generalprufum mótherja Íslands fyrir EM í Sviss Sjá meira