Kristinn samdi við Stella Azzurra Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. júní 2013 12:15 Mynd/KKÍ
Kristinn Pálsson, 16 ára leikmaður Njarðvíkur og leikmaður yngri landsliða Íslands, leikur með ítalska unglingaliðinu Stella Azzurra Rome næsta vetur. Frá þessu er greint á heimasíðu KKÍ. Kristinn þáði boð um að leika með liðinu um síðastliðna páska. Þar tók liðið þátt í sterku alþjóðlegu móti 19 ára liða sem haldið er árlega á Ítalíu. Kristinn hélt út og æfði með liðinu í tæpa viku fyrir mótið sem fram fór í Lissone, sem er rétt fyrir utan Mílanó. Kristni gekk vel á mótinu, liðið endaði í 3. sæti á mótinu þrátt fyrir að vera með mjög ungt lið og Kristinn var svo valinn besti ungi leikmaður mótsins. Árangurinn verður að teljast afar góður enda voru með honum í liði strákar sem taldir eru vera á meðal fimm efnilegustu leikmanna í Evrópu í sínum árgangi. Kristinn hafði einnig leikið með liðinu á móti í Barcelona á síðasta ári. Frammistaða hans varð til þess að honum var boðið utan um páskana. Nú hefur Kristinn ákveðið að þiggja boð Stella Azzurra og vera næsta árið til að byrja með hjá liðinu þar sem hann mun stunda nám og æfa af krafti. Verið er að ganga frá öllum umsóknum og leyfum svo hann geti haldið út í júní. Stefnan er að hann æfi með liðinu í einn mánuð, komi svo heim en flytji endanlega út í haust.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Dagskráin: Doc Zone í jólaskapi, fullt af leikjum í enska og HM í pílu Sport Fleiri fréttir Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Elvar stigahæstur en fékk ekki sigur í jólagjöf Martin mættur aftur inn á völlinn og liðið hans endaði taphrinuna Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Meisturunum fatast flugið „af því hitt liðið er betra“ Jólagleði í Garðinum Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Missti alveg stjórn á skapinu en það skilaði sigri Stórstjarna úr WNBA-deildinni í heimsókn á Íslandi ÍR-ingar bæta við sig reyndum og hittnum Króata Í bann fyrir að kasta flösku í barn Hjalti Þór ráðinn aðalþjálfari Álftaness Kolbrún María kom við sögu í endurkomu Hannover Næstframlagshæstur í grátlegu tapi Fékk næstum 4,5 milljóna króna sekt fyrir að sýna dómara fingurinn „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Stjarnan - Álftanes 108-104 | Unnu grannaslaginn naumlega Uppgjörið: Ármann - ÍA 102-83 | Ármann náði í gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni með sigri gegn Skagamönnum Jokic tók NBA-met af Abdul-Jabbar í nótt KR á frábærum stað en getur ekki unnið titilinn Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega að líta í kringum mig“ Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 93-83 | Enn taplausir í Sláturhúsinu „Ánægður að spila ekki betur en þetta en vinna samt“ „Svo lengi sem það er ekki jákvæð og góð umfjöllun um okkur erum við sáttir“ „Hefðum þurft að hafa heppnina með okkur í liði“ ÍR - Valur 82-85 | Baráttusigur í Breiðholti „Sáttur að geta farið heim, borðað vel og fengið mér nokkra kalda“ Tindastóll - KR 130-117 | Kláruðu gestina í seinni hálfleik Þór Þ. - Grindavík 94-106 | Baráttusigur gegn löskuðu liði Þórs Sjá meira
Uppgjörið: Ármann - ÍA 102-83 | Ármann náði í gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni með sigri gegn Skagamönnum