Tollvörðurinn ekki ákærður 19. apríl 2013 17:30 Fíkniefnin komu til landsins með póstsendingum.
Sjö karlmenn hafa verið ákærðir í tengslum við umsvifamikið amfetamínsmygl fyrr á þessu ári. Þetta er eitt stærsta fíkniefnamál á Íslandi í langan tíma. Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur staðið yfir í þónokkurn tíma en flestir hinna grunuðu voru handteknir í janúar og febrúar síðastliðnum. Mennirnir eru grunaðir um að hafa reynt að smygla inn til landsins hátt í tuttugu kílóum af amfetamíni og 1,7 lítra af amfetamínbasa. Ætla má að hægt hefði verið að framleiða 17 kíló af amfetamíni úr basanum. Efnin komu til landsins í nokkrum póstsendingum en það voru tollayfirvöld sem fundu efnin með aðstoð fíkniefnahunda. Efnin komu frá Danmörku og hafa íslensk lögregluyfirvöld rannsakað málið í samstarfi við dönsku lögregluna. Sex karlmenn, íslenskir og litháískir, sátu um tíma í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins og eru fimm þeirra á fertugs- og fimmtugsaldri en sá sjötti um fimmtugt. Fimm þeirra sem sátu í gæsluvarðhaldi eru á meðal hinna ákærðu en tveir af hinum ákærðu sættu ekki gæsluvarðhaldi. Tollvörður sat um tíma í gæsluvarðhaldi vegna málsins, en hann er ekki ákærður í málinu.
Mest lesið Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Fleiri fréttir Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Sjá meira